Lögrétta - 01.03.1932, Síða 40

Lögrétta - 01.03.1932, Síða 40
I 191_____L ö G R_J^ E T T A 192 Varasjóðír hrepþannet Ól. £>. Sjörnsson Á síðustu tímum hefur mikið verið rætt og ritað um afturhald og íhald, frjálslyndi og framsókn. Það mun víst nokkuð almenn skoðun að hreppsnefndir eigi mikið skylt við afturhald, enda mun víst af sumum tal- ið, að betra orð en ,,hreppsnefnd“ sje ekki til yfir það sem kalla megi rammasta íhald. Nýja Island er ekki gamalt. En hið ó- numda ísland er gamalt, og fjárfrekt þegar það vaknar og „klæðist“, og þess heldur, ef það á að klæðast fljótt og klæðast vel. Síðan þjóðin sjálf fór að hafa nokkur fjárráð svo nefnandi sje, er svo skamt, að yngstu menn muna í því falli tvenna tím- ana. Hreppsnefndir telja sig því líklega hafa nokkra afsökun um íheldní sína. Þær segja sem satt er, að til skamms tíma hafi ekkert verið á að leggja, af engum neitt að taka. En síðan farið var að „rýja“ menn, hafi líka þurft að „halda í reifið“, til þess að nokkuð yrði úr því unnið. Það mun ekki óalgengt, að einn og annar hafi legið hreppsnefnd á hálsi fyrir að gera ekki þetta eða hitt, en það hefur líka viljað til, að þeir hinir sömu menn hafi ekki sjeð sjer fært að gera eða láta gera þessi sömu verk, þegar þeir sjálfir voru komnir í hreppsnefnd. Þetta sannar málsháttinn, að „hægra er um að tala en í að komast“ og ennfremur, að viðhorf manna til mála og ákvarðanir um þau fara oft á annan veg, þegar menn eru orðnir ábyrgir fyrir þeim. Jeg neita því síst, að íheldni ýmissa hreppsnefnda gengur oft og tíðum alt of langt. Það vill nú oft vera svo, að þetta sje ýmist í „ökla eða eyra“, því ekki vantar rm allar bæj arstj órnir frjálslyndið, enda hafa þær fengið að „kenna á því“ ekki síð- ur en hinir á íhaldinu. Og víst er ekki gaman að þessu, þegar alt er ómögulegt nema hinn gullni meðalvegur, sem enginn ratar og verður víst ekki lagður í þessari kreppu frekar en aðrir vegir, sem þó ef til vill yrðu fjölfarnari. fsland er ónumið, og vjer viljum allir það sama, að það verði numið sem fyrst. En það verður með engu móti fyr gert, en ef hægt væri að skapa möguleika til stöð- ugra framkvæmda út um allar bygðir lands- ins. En vjer íslendingar erum alt of bráð- látir og lútum ekki svo lágt að skygnast eftir möguleikum til stöðugra framfara. Heldur ætlum vjer að gera alt, eitt og ann- að á 1—2 árum, og ef það er ekki hægt, þá er talið að ekki sje um neinar framfar- ir að ræða. Það er margt á síðari árum, sem bendir á þennan hugsunarhátt. En þá dreymdi engan um, að „kreppa“ gamla yrði á ferðinni á 2. eða 3. ári og skipaði með harðri hendi að hætta þar sem verst gegndi. En það er ómótmælanleg staöreynd, að „kreppan" fer langverst með þá, sem ætla að gera alt strax. Að mínu viti er það þetta, sem mest stendur eðlilegum fram- förum í ýmsum hreppum fyrir þrifum: Að aldrei er til grænn eyrir afgangs brýnustu þörfum, til að leggja í nauðsynlegustu framkvæmdir, heldur verður jafnvel þegar verst gegnir, ráðist í það með dýrum l'áin- um til stutts tíma, að gera eitt og annað, sem oft er þá búið að draga svo lengi, að ekki verður lengur umflúið. Þetta eykur þá svo mikið álögur, að hreppsfj elögin fá ekki undir risið, ef nokkuð bjátar á. Þetta stendur hvað mest hollum og eðlilegum framförum fyrir þrifum. Það vita þeir sem nokkuð vilja vita. Fyrir nokkrum árum kom jeg fram með eftirfarandi tillögu og lagði fyrir með- nefndarmenn mína í hreppsnefndinni. Þeim fanst öllum tillagan orð 1 tíma talað og mjög athyglisverð. Tillagan hljóðar svo: Hreppsnefndin hefur ákveðið að leggja til hliðar á þessu ári — 1000 — eitt þús- und — krónur — og leggur þar með grund- völlinn að „Framfarasjóði Akraness“. — Nefndin óskar þess og leggur áherslu á, að komandi hreppsnefndir geri hið sama ár- lega. Hún leggur ennfremur áherslu á, J
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Lögrétta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.