Lögrétta - 01.03.1932, Qupperneq 41

Lögrétta - 01.03.1932, Qupperneq 41
193 L ÖGRJETTA 194 vegna heilla hreppsfj elagsins, að hver og ein hreppsnefnd telji það helga skyldu sína, að snerta ekki þennan sjóð öðruvísi nje í öðrum tilgangi en hjer segir: Þegar sjóð- urinn er orðinn 2000 krónur má hrepps- nefndin hinn 2. janúar ár hvert taka að láni úr sjóðnum til 25 ára, gegn 5% árs- vöxtum '/2 — helming — af þeirri upphæð, sem sjóðurinn nemur þann dag. Lán má aldrei veita nema 2. janúar. (Ef lán hefur ekki verið tekið 2. janúar, má ekki hreyfa sjóðinn það ár). Ekki má heldur lána úr sjóðnum stóra eða smáa upphæð, nema hreppurinn hafi lagt í sjóðinn 1000 kr. fyrir það ár sem lánið er veitt á. Ekki má heldur veita lán úr sjóðnum nema hrepps- nefndin hafi þann dag, sem lánið er veitt, greitt vexti og afborganir til sjóðsins fyrir næstliðið ár, (þ. e. sje skuldlaus við sjóð- inn með vaxta- og afborganagreiðslu). Þegar finna skal út upphæð þá, sem lána má úr sjóðnum á hverjum tíma, samkv. framansögðu, helming, má aldrei leggja minna en 100 kr. til grundvallar. Ef t. d. sjóðurinn er 3079 kr., má ekki lána nema 1500 kr. o. s. frv., en það, sem fram yfir er, leggist ávalt við. Sjóðinn má aldrei skerða, nje eyða öðru- vísi en að framan er sagt. Úr sjóði þess- um má aldrei lána nema hreppssjóði, og að- cins til þess er hjer segir: Til hverskonar hafnarbóta sem er og sjóvarnargarða, sj úkrahúsbyggingar, vatnsleiðslu, raf- magnsstöðvar, gistihúsbyggingar, skolp- ræsagerðar, malbikunar vega, barnaskóla- og leikfimishúsbyggingar, þinghúsbygg- ingar, framhaldsskóla, land- eða jarðakaupa. Aldrei má loka svo hreppsreikningi hvers árs, að ekki sje sjóðnum greitt það sem tilskilið er. Sjóðurinn ávaxtast í Sparisjóði Borgarf j arðarsýslu. Jeg hef nú hjer að framan gert nokkra grein fyrir því, hver þörf okkur væri á fje til framkvæmda. Kostur við þessa einföldu leið til f j áröflunar er margvíslegur og mark- viss. 1) Þarna safnast á tiltölulega skömm- um tíma mikið fje. 2) Með þessu safnast fje án þess nokkur viti af eða finni til þess. 3) Þetta yrði varasjóður hvers hreppsfj elags, sem fyrirbygt er að verði eyðslueyrir. 4) Þetta skapar nú þegar vissu fyrir því, að hver hreppur geti á sínum tíma sjálfur sjeð fyrir sínum fjárhagslegu þörfum til allra framkvæmda, og getur í sannleika sagt, að ,,betra sje hjá sjálfum sjer að taka, en sinn bróður að biðja“. 5) Það tryggir hvert hreppsfj elag, eykur álit þess og öryggi, það skapar blátt áfram hyggnari menn, sem kosta kapps um að auka sjóðnum ásmegin, til framfara fyrir bygðarlagið. Og það skapar kepni milli hjeraða. 6) Það safnar saman fje, sem ann- ars væri ekki til staðar. 7) Það dregur úr ,,kreppunni“ og skapar atvinnu og öryggi. 8) Það vinnur tvöfalt gagn með því að á- vaxtast í hjeraðinu, til afnota fyrir hjer- aðsbúa sj álfa. Eins og jeg gat um, þótti tillaga þessi athyglisverð, en hún hefur enn ekki kom- ist hjer til framkvæmda, vegna óvissunnar um það, hvort næsta hreppsnefnd liti eins á málið, því hún, eða næstu hreppsnefncíir, gætu jetið sjóðinn upp, þ. e. gert hann að eyðslueyri, svo rækilega, að ekki stæði steinn yfir steini, því enn eru ekki til nein lagafyrirmæli, sem gætu varnað því. Jeg skrifa því þessa grein með þeim á- kveðna ásetningi, að biðja Alþingi að setja. lög hjer um. Lög, sem skyldi hvert hrepps- fjelag til að leggja árlega fje í slíkan sjóð. Núgildandi útsvarslög heimila aðeins að leggja á fyrir þörfum, þó má leggja á 10% þar framyfir, en þar er vitanlega að- eins átt við fyrir ýmsum vanhöldum. Er sú heimild víst óvíða notuð, meira að segja. 1 mínum augum er það stór galli í fari hreppsnefnda yfirleitt: Hve heimskulegt það er, að leggja ekki nokkuð meira á, í afburða góðærum. Ekki til þess að eyða þá, heldur til þess að geta dregið aftur úr álögum þegar illa árar, og enginn getur greitt neitt, til þess þá að geta tekið hjá sjálfum sjer fje til framkvæmda í erfiðum árum, þegar lítið er um vinnu. Þetta er einn stærsti kostur þessarar hugmyndar. Jeg vil að það verði lögákveðið, að skylda hreppsnefndir til að leggja til hliðar 2% af árlegri niðurjöfnun útsvara í líku augna- miði og hjer hefur verið bent á. Þó sje
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Lögrétta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.