Lögrétta - 01.03.1932, Page 45

Lögrétta - 01.03.1932, Page 45
201 L ÖGRJETTA 202 átt eins góðan og skemmtilegan kennara og B. M. Olsen. Annars er það ekki ætlun mín, að fara að dæma um kennara skólans og kenslu. Jeg hef minst á þessa tvo af því að dómar um þá hafa verið meira skiftir en um hina. Jeg álít að kenslukraftar við skólann hafi yfirleitt verið góðir. En um hið fyrirskip- aða nám er öðru máli að gegna. Um þetta leyti var það orðin nokkuð algeng skoðun meðal skólapilta, að alt of miklum tíma væri varið til forntungnanámsins, og undir þá skoðun var kynt af ýmsum hinum yngri mentamönnum, einkum þeim, sem gengið höfðu á Háskólann í Kaupmannahöfn. Þetta leiddi til breytingarinnar, sem komst á nokkru eftir aldamótin. Sú breyting var án efa til bóta, og þær kenningar, sem síðar hafa komið fram frá ýmsum þeim, sem útskrifuðust úr skólanum undir eldra fyrirkomulaginu, að stúdentarnir sjeu yfir- leitt ver að sjer nú en þá, álít jeg rangar, og ef farið væri aftur að breyta til og færa skólann í eldra sniðið, eins og komið hefur til orða, teldi jeg það afturför. Þegar litið er yfir samferðamannahópinn á skólaveginum, sem frá er sagt hjer á undan, og þess gætt, hve fáir komast alla leið og verða embættismenn, eins og stefnt var þó að í fyrstu, þá hlýtur mönn- um að virðast svo sem þarna sje um all- erfiða leið að ræða. Einir 6 af 22 komast í höfn. Báta allra hinna hrekur úr leið, fyr eða síðar, og þeir lenda hjer eða þar, eftir atvikum. En samt geta þeir allir hafa haft meira eða minna gagn af skólaver- unni. Og þegar litið er nú yfir ferðalagið úr fjörutíu ára fjarlægð frá fyrsta tak- markinu, sem var stúdentaprófið, þá sjest, að ýmsir af þeim, sem ekki náðu höfninni, hafa engu síður orðið nýtir rnenn í þjóð- fjelaginu en hinir, sem þangað komust. T. d. mætti nefna Þorvarð Þorvarðsson, sem orðið hefur hinn mesti atkvæðamaður í þeim verkahring, sem hann valdi sjer þeg- ar hann hætti náminu, forgangsmaður prentarast j ettarinnar og áhrifamaður í ýmsum opinberum málum. Jeg dreg þá ályktun af yfirliti mínu hjer á undan, að á námsferlinum ættu að vera sem flestir áfangastaðir, þar sem menn gætu hætt með einhverjum árangri, þ. e. prófi, sem verða mætti þeim að einhverju gagni. Gamla skólafyrirkomulagið hafði enga slíka áfangastaði aðra en stúdenta- prófið, og afturhvarf til þess fyrirkomu- lags teldi jeg því breytingu til hins verra. Nokkuð bar á því í skólanum, að ein- stakir piltar hneigðust að ákveðnum náms- greinum, en vanræktu aðrar. En alt kenslu- fyrirkomulagið stríddi á móti því, að svo væri gert, og flestir voru þeir, sem ekki lögðu stund á eitt öðru fremur, en lásu alt jafnt, eftir því sem fyrir var sett. Margir voru ónýtir í stærðfræði, ekki af því að þeir verðu minni tíma til hennar en annara námsgreina, heldur af því, að þeir skildu aldrei undirstöðuatriðin og ímynduðu sjer svo, að þessa námsgrein gætu þeir ekki lært. Menn útskrifuðust þá í henni við fjórðabekkjarpróf, og þess vegna varð sá bekkur þröskuldur á veginum, sem margir hnutu um, og sátu þar eftir, þótt þeir væru sæmilega að sjer í öllum öðrum greinum. í árganginum, sem hjer er um að ræða; voru þeir Sigfús, Magnús og Ásmundur á- gætir námsmenn. Sama er að segja um Jóhann Sólmundarson. Sigfús var afburða- vel að sjer í fornmálunum, svo að jeg hygg, að um langt skeið hafi enginn út- skrifast úr skólanum með annari eins kunnáttu í þeim og hann. Hinir tveir voru jafnvígir á alt. Pjetur Guðjohnsen lagði sjerstaklega stund á frönsku, og Hannes Ó. Magnússon, meðan hann var í skóla, á ensku. I almennu fjelagslífi skólans tók jeg einna mestan þátt, eftir að við komum upp í efri bekkina, var forseti Framtíðar- innar og fleiri fjelaga í skólanum, og skrif- aði mikið í blöð og rit skólapilta. En það gerðu þeir einnig Benedikt GrÖndal og Sig- fús Blöndal, og Ásmundur Gíslason nokk- uð. Hann skrifaði m. a. langa og skemti- lega ferðasögu um för okkar austanpilta og norðanpilta suður til skólans eitt haust- ið. Benedikt Gröndal var alla okkar skóla- tíð umsjónarmaður í bekknum, og leysti starf sitt svo vel af hendi, að þar varð

x

Lögrétta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.