Lögrétta - 01.03.1932, Síða 52

Lögrétta - 01.03.1932, Síða 52
215 L ÖGRJETTA 216 entafundi og sá að ljós var logandi hjá hon- um, og gekk inn; hann var þá að lesa í Shakespeare og sagði: „Hann er ekki með þennan andskotans móral eins og Holberg!“ Mjer varð hverft við, kvaddi og gekk hugsi inn til mín; síðar skildi jeg hvað hann átti við, því Holberg endar æfinlega leiki sína svo: Moralen er o. s. frv. og eyðileggur með því ánægjuna fyrir nútíðar lesendum. Svipað er um draugasögur, sem menn segja með útskýringum eftir á — eins og Jón forni Þorkelsson gerði. Þetta minnir mig á það, að Jón Þorkels- son rektor, hálærður og einstakt ljúfmenni sagði okkur skólasveinum, að Eiríkur frá Brúnum, sem þá hafði ritað og gefið út ferðasögu sína til Utah — Mormónasveitar- innar í Bandaríkj unum mundi rita íslenska tungu allra manna best, eða eins og hún lifir á vörum þjóðarinnar. En prentar- arnir, sem „settu“ bókina (ætti raunar að skrifast: „stafsettu“ bókina) gerðu það af leik, eða vanþekkingu að afskræma ritið og er það skoplegt að heyra og sjá vanþekk- inguna henda gaman að þekkingunni. Eiríkur hafði skrifað um aðhlynningu þá, sem kona hans fjekk á vesturleið í hafinu, að það hefði farið svo vel um hana eins og í treflöskjum; en í bókinni stóð: trje-flösk- um! Þannig úði og grúði um alla bókina af útúrsnúningum. Þessar öskjur notuðu konur í ungdæmi mínu undir traf, skrautlín og dúka og voru þær ekki ósvipaðar smjeröskjum, sem fjall- reiðamenn og fólk sem lá í tjöldum afbæjar á engjaslætti hafði undir viðbit. Þær voru til á Stóranúpi, þegar jeg var lærisveinn sjera Valdemars Briem, en þar voru þær nefndar traföskjur. — Fóstri minn þótti málstirður og var það. En ekki veit jeg hvort það var vegna þess, að honum væri stirt um tungutak, eða fyrir vandvirknissakir. Hann þótti mæla miður á danska tungu; en Lund lyfsali, sem var bæði vel gefinn og lærður, sagðist engan hafa heyrt tala jafn vel dönsku og bætti við, að hann talaði svo rjett málið, að óhætt væri að skrifa upp orðrjett eftir honum. Mig furðaði á þessu og mintist á að hann bæri „r“ fram eins og hann væri að tala íslensku. „Góði Sig- urður, komið þjer ekki með þessa vitleysu. Þegar íslendingar eru að reyna að apa þetta eitir okkur, þykir mjer það ógeðslegt; þeir geta það aldrei hvort sem er!“ Einhverju sinni sem oftar reis upp há alda í Reykjavík um afnám gömlu málanna sem námsgreina í Latínuskólanum. Blöðin fluttu þar bergmál almennings, eins og vant er. Var þá flestu teflt fram og einkum því, að þau væru „Luxus“, eða óþarfi. Allir rit- höfundar, sem notað hefðu latínu fyr og síðar væru, hvort eð væri, til í ágætum þýðingum og auk þess væri hún svo eríið nemendunum. Á hvorttveggja þessu hafði Ólsen djúpa fyrirlitningu; en mesta þó á þeirri röksemd, sem mest átti að hrífa: tímann, sem sparaðist, gætu skólasveinar notað til frekara enskunáms, svo þeir gætu orðið fylgdarmenn enskra ferðamanna að sumrinu til! Skólasveina,r fyltu að vonum þann hóp- inn, sem vildi afnám fornmálanna úr skóla. Því var það, að nokkru fyrir skólahátíðina, sem haldin var 8. aprílmánaðar, á fæðingar- dag konungs, Kristjáns IX., hnoðuðu þeir saman skálaræðu á latínu fyrir minni ól- sens, sem fermastir voru í latínu í efstu bekkjunum; var Páll Sveinsson fenginn í kyrþey til að læra ræðuna til flutnings á hátíðinni, honum að óvörum. Jeg var ekki viðstaddur þá, nje endra- nær, á hátíðahöldum, sem haldin voru þar, sem bjart var; hafði jeg hvorki fje nje föt til þess. En piltur, sem viðstaddur var og sat and- spænis, skáhalt við borðið og horfði fram- an í Ólsen, en ekki ræðumanninn, því hann vissi um aðdragandann, sagði mjer síðar að Ólsen hefði brosað þegar kom lítið eitt fram í ræðuna og hann sá hvað í efni var, en stúlkurnar hlustað eins og í hrifningu, þótt ekkert orð skildu. Nú dundu húrrahróp. ólsen stóð upp eins og ekkert væri um að vera og byrjaði: „Carissime alumne!“ Hjelt síðan áfram viðstöðulaust. Síðar um nóttina sótti einhver kunningja minna mig inn á „rallið“; þar sátu þeir og skröfuðu og drukku, sem ekki kunnu eða
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Lögrétta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.