Lögrétta - 01.03.1932, Síða 54

Lögrétta - 01.03.1932, Síða 54
219 LÖGRJETTA 220 núpi. Steinn fylgdi okkur einhverju sinni yfir Rangársand og töluðu heir, ólsen og hann alla leiðina um Njálu. En Brynjólfur fylgdist með Ólsen, sjera Valdemari, Hann- esi Hafstein, Tvede lyfsala o. fl. inn í Gjá í Þjórsárdal, og varð nokkuð kendur, af sama sem engu áfengi; hann holdi ekki vín og fór að garga vísu æ ofan í æ: „Þjóð- frelsis viský á þjóðfrelsisstund“ o. s. frv1., en ekki lærði jeg nema upphafið. Okkur leiddist þessi sónn í Brynjólfi; einkum ljet Hannes það í ljósi, en ekki sást eða heyrðist neitt í þá átt til Ólsens. Hann bar svo mikla virðingu fyrir viðleitni þessa sjúka og fátæka manns til fróðleiks og þekkingar. — Stafsetningardeila sú, sem' háð var hjer um árið, mun mörgum minnisstæð, sem komnir eru til ára sinna. Lítilsháttar vil jeg víkja að henni og má með sanni segja, að flest geta menn gert sjer til óvin- áttu efnis, ef því er að skifta, þegar farið er að berast á banaspjót um „rj ett“ritunar- reglur; en svo var hjer. Ólsen var mjög íhaldssamur í aðra rönd- ina, en á undan sínum tíma í hina. Hann vildi láta rita sem líkast mæltu máli, og þarf ekki að rista djúpt til þess að sjá það, að ritað mál er og verður aldrei annað, en afskræmi talmálsins, eða upp- bót. Því fæstir eru svo ritfærir að lesand- inn heyri og sjái höfundinn sem ritar; en undir því er oft og einatt mjög mikið komið. Stafsetningardeilan snerist að miklu leyti um skegg keisarans, ý og z. Röksemdirnar, sem fluttar voru af íhalds- mönnum voru þær helstar, að það mundi spilla útliti ritaðs máls að sleppa stöfunum og erfiðara mundi verða fyrir almenning, að átta sig á uppruna orðanna. Til gamans sjálfum sjer og háðs handa öðrum bjuggu þeir til þennan samsetning: „Væna á hann sinina". En þeir gættu þess ekki, að rjett þolfall fleirtölu sonar er sonu, en ekki syni — fyr en síðar í talmáli. Man jeg vel, að Ólsen brosti þegar Ei- ríkur gamli á Reykjum á Skeiðum sagði við okkur, orðinn sjónlaus og kominn í kör, að annaðhvort hann sjálfur, eða sá sem hann ræddi um, ætti sjö sonu. Ekki man jeg hvort Ólsen laut svo lágt í deilunni að minnast á útlit ritaðs máls, enda mun það fara eftir rithönd manna og furða, að mentamenn skuli skreiðast að slíku. Ólsen hjelt fyrirlestur urp stafsetning í Fjalakettinum, sem svo var nefndur vegna þess, að þar var „Balkon“; hafði jeg aldrei sjeð þannig húsum háttað fyr. Bauð hann þangað Birni ritstjóra Jónssyni og fleirum samherjum hans í þessu máli. En þeir komu ekki, nema Þorsteinn Erlingsson skáld; var haldið, að hann hefði verið send- ur þangað. Heyrði jeg þetta borið upp á hann löngu síðar í samdrykkju, en hann þrætti fyrir með þeim hætti, að jeg hef aldrei síðan efast um að hann sagði ósatt. Um það leyti, sem Ólsen ætlaði af stað, fjekk hann brjef frá Birni Jónssyni, las það og stakk í ofninn. Líklegt þykir mjer, að þeir einir hafi vitað efni brjefsins. Halldór Friðriksson, sem fylgdi ólsen af alhug í þessu máli, þakkaði honum með handabandi fyrir lesturinn og sagði upp vfir alla: „Við gerðum það gott!“ Reykjavíkurbær var þá ekki stærri eða smærri, eftir því sem það er tekið, en það, að flokkadráttur varð um þennan hjegóma — Ólsen var mjög gestrisinn, að því leyti sem honum var unt, heimilislausum manni. Veitti vín, vindla og fínar, útlendar kökur, ef gestir höfðu konur með sjer; á- vexti átti hann líka, epli, appelsínur og sykraða — „candiseret“ — ávexti, sem hann pantaði frá Mey & Edlich í Þýska- landi; þá sá jeg fyrst hjá honum. Hann sameinaði það, sem fáum er gefið á þessu sviði, sparsemi og risnu. Þegar hann skrapp á hestbak, eða í löng ferðalög landveg, tók hann æfinlega eitt- hvað af sínum gömlu fötum og átti hann mestan fatnað, sem jeg hef vitað í eins manns eigu, marga pípuhatta, þrjá kjól- , klæðnaði, marga yfirfrakka og alt eftir þessum brjefum. Sama er að segja um vín- föngin; hann átti alla jafna mikið vín í fór- um sínum, bæði í klæðaskápnum, sem var tvísettur og í kjallaranum undir skólagang- inum. Keypti hann margar flöskur í einu af j A
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Lögrétta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.