Lögrétta - 01.03.1932, Síða 59
229
LÖGRJETTA
230
ákveðið játandi eða neitandi. Svörin eru
annars nokkuð sundurleit. Bertrand Russel
jarl segist ekki vita við hvað sje átt með
slíkri spurningu. Prófessor J. S. Haldane
svarar: Já, og jeg held að annað svið sje
ekki til (en það andlega). Sagnfræðingur
einn segist ekki trúa á þetta í sama skiln-
ingi og spiritistar, og próf. Winogradsky
segir að engar fullnægjandi sannanir sjeu
til fyrir sálrænum fyrirbærum án einhvers
efnis. Próf. Farr (eðlisfræðingur í Nýja
Sjálandi) segir, að í náttúruvísindum nú-
tímans sje ekkert, sem geri það óm-öguleg't
að trúa á tilveru andlegs heims, aðgreinds
frá efnisheiminum, en hinsvegar sjeu sann-
anir fyrir tilveru hans ennþá ekki til, og
svarið við þessu sje nátengt svarinu við
annari spurningu, þeirri, hvort persónu-
leiki manna sje til eftir líkamsdauðann.
Stærðfræðingurinn próf. Jeffery segir, að
hlutverk sitt sje það, að skilja alla reynslu
sína eftir föngum, sumar staðreyndir geti
hann skilið frá sjónarmiði efnislegs heims,
en aðrar verði skiljanlegri frá öðrum
sjónarmiðum. „Jeg tel mjer frjálst að nota
öll sjónarmið, sem fólgin eru í orðunum
vísindi, list, trú o. s. frv. Þau eru ekki
heimar eða svið. En ef átt er við þetta:
Er andlegt viðhorf (aspect) á reynslunni
að minsta kosti eins gott og gilt og efnis-
legt viðhorf, þá segi jeg já“. Watson, pró-
fessor í dýrafræði og samanburðar anato-
miu við Lundúna háskóla segir: Auðsjáan-
lega eru til svæði mannlegrar starfsemi
(s. s. list) sem ekki verða skilin með vís-
indalegum aðferðum. Eðlisfræðingur einn
svarar: Þetta er það eina sem jeg trúi (að
andlegur heimur sje til) því að hugsun og
tilfinning — hvorutveggja andleg — eru
það eina, sem jeg veit um beinlínis. Tilgát-
ur vísinda og trúar, sem eru bygðar á og úr
þessum tilfinningum og hugsunum, viður-
kenni jeg einungis sem hjálp.
Ber maðurínn ábyrgð gerða sínna ?
Önnur spurningin, sem lögð var fyrir vís-
indafjelagsmennina, var sú, hvort þeir á-
litu, að maðurinn væri að einhverju leyti
ábyrgur fyrir gerðir sínar. Sjö neituðu
þessu, en 173 játuðu því, en 20 svöruðu
ekki, eða ekki ákveðið. Meðal þeirra, sem
neituðu, voru Hardy, stærðfræðaprófessor
í Oxford og Walker prófessor í veðurfræði,
en meðal þeirra, sem svöruðu játandi voru
Max Planck, Sir Oliver Lodge, Sir Flinders
Petrie, Soddy prófessor í efnafræði í Lond-
on o. fl. Russel jarl sagði að spurningunni
væri ekki hægt að svara, af því að „ábyrg-
ur“ væri svo óákveðið hugtak. Prófessor
Bordet, Nobelsverðlaunamaður í læknis-
fræði og prófessor í gerlafræði í Brússel
segir: Gerðir mannsins eru komnar undir
heilbrigði líffæra hans og lífeðlisfræðilegu
ástandi hans. Prófessor Mordell, háskóla-
kennari í hreinni stærðfræði í Manchester,
segir að „maðurinn hagi sjer eins og hann
væri ábyrgur gerða sinna og að það sje
þægilegt fyrir þjóðfjelagið, að gera ráð
fyrir því, að hann sje það, en í sjálfu sjer
muni hann ekki vera það“. Lávarðurinn
Sydenham of Comb segir, að alment talað
sjeum við ábyrgir gerða okkar í hlutfalli
við þær gáfur, sem við höfum hlotið að
erfðum, fyrir eftirdæmi, uppeldi og reynslu.
Svörin við þessum spurningum eru annars
almenns eðlis í þær áttir sem nú hefur
verið lýst.
Quð og þróun og sköpun
Þriðja spurningin var svona: Álítið þjer
að trú á þróun sje samræmanleg við trú
á skapara? 142 svöruðu já, 23 nei og 52
voru óvissir. Prófessor einn í tfnafræði
segir: Ef með skapara er átt við persónu-
legan skapara eins og honum er lýst í
Mósebókunum, er svarið neitandi. Ef orðið
á að tákna ópersónulegt sköpunarstarf sem
framleiði allan heiminn og lögmál hans,
væri ekkert ósamræmi í þróuninni, þvert á
móti“. „Þróun er staðreynd, fundin með at-
hugun. Við getum ekkert vitað um skap-
ara“, segir svissarinn prófessor Heim. Pró-
fessor Mac Bride, dýrafræðingurinn segir:
„Eitthvert afl hlýtur að vera að baki al-
heiminum, þar sem vitsmunir mannsins
hafa komið úr heiminum og vegna þeirra
einna vitum við eitthvað. Þetta afl hlýtur
að vera vitsmunaafl, þ. e. hlýtar að vita og