Lögrétta - 01.03.1932, Síða 61

Lögrétta - 01.03.1932, Síða 61
233 LÖGRJETTA 234 Guðsþjöllín og auðæfí Menn ræða nú mikið og deila um afstöðu trúar og þj óðfj elagsmála, einnig hjer á landi. Ýmsum mun því þykja í því nokkur fróðleikur, að sjá hvaða skoðanir einn helsti og besti kennimaður ensku kirkjunnar, lnge dómkirkj uprestur, hefur á slíku og er því birt hjer þýðing á grein, sem hann hef- ur skrifað um þetta í nýjustu bók sinni (More Lay Thoughts of a Dean). Hugsanleg er þrennskonar afstaða guð- spjallanna gagnvart fjármálum. Við gætum hugsað okkur að milli þeirra væri ekkert samband, þar sem trúin á við svið sálar- innar, en fjármálin við líkamann. Það er þá, eins og ameríkumaður einn komst að orði, að blanda saman trú og verslun er að spilla tveimur góðum hlutum. Við gætum í öðru lagi álitið kristindóminn, eins og kommúnistar og flestir jafnaðarmenn meg- inlandsins gera, aðalhindrun þess, sem þeir kalla þjóðfjelagsrjettlæti. „Byltingin, sagði Bebel, afneitar allri trú“. „Fyrsta orð trúarinnar, sagði Engels, er lygi“. „Guðshugmyndina verður að eyði- leggja, sagði Marx, hún er hyrningarsteinn öfugsnúinnar menningar“. „Trúin er ópíum alþýðunnar“, sagði Lenin. Þeir sem þessum kenningum fylgja æskja engrar nýrrar trúar í stað guðspjallanna, þeir eru blátt áfram efnishyggjumenn og guðleysingjar. í þriðja lagi gætum við hugsað okkur það, að guðspjöllin, rjett skilin, væru byltinga- rit. Magnificat er byltingakendara en Rauði fáninn. Jesús er le bon sans-culott, ákveð- inn vinur hinna undirokuðu. Þessi síðast- nefnda skoðun er mjög algeng í Englandi, þar sem jafnaðarstefnan er í heild sinni ekki andstæð kristindómi. Kirkj uleiðtogar, eins og Gore biskup, hafa lýst því yfir, að þjóð- skipulag nútímans valdi þeim sáru samvisku- biti, eftir að þeir hafi lesið guðspjöllin. Ilvor er fjarlægari kristindóminum, ríki maður- inn, sem hugsar eins og bóndinn hjá Ten- nyson, að argur sje öreiginn í hreysi sínu, og byggir í iðni sinni hvert húsið af öðru og ræktar hvern blettinn af öðrum, eða efnis- hyggj uj afnaðarmaðurinn hjá Kirkwood, sem segir að „í heiminum sje aðeins til eitt fyrirlitlegt mein, fátæktin" ? Sannleikurinn er sá, að báðir hafa sama matið — eignin er í þeirra augum kjarni lögmálsins og alt fagnaðarerindið. Einn tekur alt sem hann nær og annar freistar þess að svifta hann öllu. Afleiðingin er, og hlýtur að vera, stjettabarátta upp á líf og dauða. Hver er afstaða Frelsara okkar? Við verð- um að minnast þess, að Hebrear höfðu, eins og sagt hefur verið, sjerstakan hæfileika til þess, að hata þá, sem ríkir voru, einkum meðan þeir voru undir oki erlendrar stjórn- ar. Það, að lesa bókmentir þeirra, er eins og að fara um Infemo Dantes. Hjá spá- mönnunum má finna nokkuð af þessu hatri, vottur þess finst í brjefi Jakobs og það er í ljósum logum hjá einræðismönnum Rúss- lands, en helmingur þeirra eru Gyðingar, sem gleðjast yfir því að geta náð sjer niðri á yfirstjettinni. En í guðspjöllunum er enginn vottur þessa. í fyrsta lagi var Jesús ekki sans- culotte eða öreigi (proletarian), hann til- heyrði sjálfstæðum, vel mentuðum, allvel efnuðum flokki bænda. Fátæktin er ekki hörð í heitu landi, og Galilear voru ekki sjerlega fátækir. Annað er samt mikilsverð- ara — í fari hans var ekki snefill af öfund eða beiskju. Hann hugsaði aldrei um fjár- mál og reyndi þaðan af síður að setja lög- gjöf um þau. Boðskapur hans var um and- lega endurlausn, ekki um þjóðfjelagslega endurbót. Alt yfirlæti og skart, lífsþægindi og óhóf virtist honum þarflaus byrði, og hindrun æðra lífs. Fylgismenn hans voru betur staddir án þess. En ríki maðurinn er kallaður „heimskingi“, en ekki „þjófur“. Hann sviftir gjaldmiðil heimsins umsvifa- laust gengi sínu. En þegar hann er beðinn að tala við bróðurinn, svo að hann skifti arfinum, þá svarar hann hvast og segir, að slíkt komi sjer ekki við. Og hann segir ennfremur við lærisveina sína að þeir skuli vara sig á ágirndinni, því að líf manns sje ekki í því fólgið, sem hann eigi. Lífið er meira en lífsviðurværið. Það er í fám orð- um sagt niðurstaðan í þjóðfjelagslegum kenningum Krists.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Lögrétta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.