Lögrétta - 01.03.1932, Síða 67

Lögrétta - 01.03.1932, Síða 67
245 LÖGRJET TA 24P fyrir hjeraðið er það höfuðatriðið að fjár- magnið streymi ekki út úr því að óþörfu. 1 slíku hjeraðskauptúni eru klæðskerar og' skóarar, húsgagnasmiðir og járnsmiðir, og þar þarf einnig að vera kvikmyndahús hjeraðsins, því þýðingarlaust er að sporna við skemtunarlöngun æskulýðsins, því ann- ars leitar hann til þeirra staða, þar sem fjelagslífinu er betur borgið. Við skulum taka til dæmis Árnessýslu, stærsta sýslufjelag landsins. Þar eru að vísu tiltölulega stór þorp, Eyrarbakki og Stokkseyri, en þau eru óhæfileg sem mið- stöð hjeraðsins, fyrst og fremst fyrir þá sök, að þau eru á útjaðri hjeraðsins. Þau eru ekki aðeins á „mölinni“, heldur á hafn- arlausri möl. Þessir kaupstaðir geta ekki orðið framtíðarmiðstöð hins mikla landbún- aðarhjeraðs. Miklu hagkvæmara væri að aðalkauptún hjeraðsins væri við Ölvesár- brú, því gnægð ræktanlegs lands er þar á allar hliðar og samgöngur greiðar í allar áttir. Um þenna stað liggur aðalsamgöngu- vegur Suðurlandsundirlendis, hvort sem sá vegur verður járnbraut eða bílvegur í fram- tíðinni og ekki ætti það að spilla, að þang- að er tiltölulega stuttur vegur til hinnar fyrirhuguðu aflstöðvar við Sogið. Jeg hygg að vandfundinn verði betri staður sem mið- stöð hjeraðsins og í rauninni hefði átt fyrir löngu að hefjast handa í þessa átt. Hjer- aðsbúar, þing og stjórn virðast hafa haft lítinn skilning á þessu máli. Til dæmis má taka hina ömurlegu vitleysu að reisa hinn mikla hjeraðsskóla á Laugarvatni, í af- skektri og fámennri sveit á útjaðri hjer- aðsins. Það bætir lítið úr skák þó þar þyki vistlegt að sumarlagi, en á vetrum, meðan skólinn stendur, er þar einmanalegt og samgöngur þangað örðugar og aðdrættir kostnaðarsamir. Hefði ekki verið betra að þessi skóli stæði nú í miðju hjeraði og væri einn lið- urinn í myndun hjeraðshöfuðstaðar ? Góðir skólar, með mentuðum og víðsýnum kenn- urum, hafa ekki aðeins mentandi áhrif á þá tiltölulega fáu nemendur, sem skólann sækja, heldur og á mannfjöldann í kring. Þar myndast gagnkvæm menningaráhrif, sem bæði skóli og umhverfi nýtur góðs af, en lifandi fjelagslíf á örðugt uppdráttar í svæfandi einveru fántennrar og afskektrar sveitar. Líklega verður Laugarvatnsskóli lagður niður og húsið notað sem sumarhótel þeg- ar tímar líða, en þá verður skóli bygður við Ölvesárbrú. Þó Árneshjerað væri tekið til dæmis, þá má hið sama segja um sum önnur hjer- uð, sjerstaklega Rangárvalla, Fljótsdals og Borgarfj arðar. Það er sjerstaklega athygl- isvert, að í Rangárvallahjeraði, þar sem landkostir og ræktunarskilyrði eru svo framúrskarandi, er ekkert kauptún og hef- ur aldrei verið, enda eru á strandlengj unni engar hafnir. Margir Rangæingar, með sýslumann þeirra í broddi fylkingar, hafa hug á því að stofna þar ungmennaskóla, og væri sjálfsagt að hann yrði í hjeraðs- kauptúni í miðju hjeraði. Ef vel væri á haldið mundi slíkpr hjeraðs- höfuðstaður eða slíkt hjeraðskauptún, sem að framan hefur verið rætt um, vaxa fljótt. Þörf er að búa vel í haginn fyrir innflytj- endur með hagfeldum lánum og ódýrum lóðum, og byggingarnefnd sjer um það frá byrjun, að bærinn verði hinn snotrasti. Nú sem stendur rennur stöðugur fólks- straumur úr sveitum landsins til sjávar- þorpa, sjerstaklega til Reykjavíkur. Ef hægt væri að beina þessum straum, ekki út úr hjeruðunum, heldur til höfuðkaup- túna sjálfra hjeraðanna, þá mundu hjeruð- in vitanlega eflast að mannfjölda og fjár- magni. Nú gætu menn spurt hvort nægilega margir yrðu eftir á bújörðunum ef fólks- flutningur yrði til hjeraðskauptúna. Þessu má fyrst og fremst svara á þá leið að betra sje fyrir hjeraðið að fólkið ílengist innanhjeraðs ef lífsskilyrði eru þar sæmi- leg, en að það yfirgefi hjeruðin með öllu, eins og nú er títt, og að jafnvel þó kaup- túnin byggist að mestu af þeim hjeraðsbú- um sem annars mundu leita burt, þá er vöxtur og viðgangur kauptúnsins bundinn við viðskifti hjeraðsbúa. Aðeins vaxandi afurðir hjeraðanna auka vöxt þorpsins, því sveitir og kauptún standa í „lífrænu“ sam-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Lögrétta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.