Lögrétta - 01.03.1932, Síða 70

Lögrétta - 01.03.1932, Síða 70
251 252 L ö G R E T T / ^slenshar bæhur Eeííur hepní Með viljans styrk og stál í hönd þú starir fram á hafið. Þú sjerð í anda óþekt lönd, en alt í þoku vafið. Þú horfir yfir holt og mó og harka hvessir svipinn — jái, þar fer saman þrek og ró. Við þökkum kostagripinn. Sigurður Sigurðsson frá Arnarholti. þreytti gang við krappan kost, komst á ranga hillu. Eftir því sem kemur aftar í kvæðahand- rit Sveins, virðist að meira jafnvægi kom- ist á skap hans, víkingurinn hverfi fyrir nútíðarmanninum. Með því síðasta er hann hefur kveðið, er þetta erindi: Aður var jeg skeikull og reikull í ráðum reynslan hefur bent mjer og kent mjer með dáðum. Oruggur að stríða og hlýða því hæðsta, hjegómanum neita en leita þess æðsta. Fleiri dæmi tek jeg ekki, læt þessi er- indi nægja. Sveinn er í eðli sínu lifandi lýs- ing á fluggáfuðum alþýðumanni frá seinni hluta 19. aldar, uppöldum í fátækt í af- skektu hjeraði og áhrifalítill af straumum m enningarinnar. Alls hefur hann kveðið allmikið og hald- ið sumu af því saman. Fátt af því prentað. Handrit hans mun byrja um 1912, er það um 200 bls. í kladdaformi. Sú eina viðurkenning er hann hefur hlot- ið fyrir ljóðgáfu sína var, að vorið 1930 gjörði hagyrðingafjelagið í Reykjavík hann að heiðursfjelaga. Sveinn er ennþá á ljettu skeiði, á 44. aldursári, og á því sennilega eftir að kveða margt smellið og bendir ýmislegt í þá átt að hann hjer eftir velji meira þau ein yrk- isefni, er sýna hvað lífið hefur best og göfugast að bjóða. Þ. K. Guðbrandur Jónsson hefur á síðari ár- um skrifað mikið í blöð og tímarit, ým- ist um sagnfræðileg efni eða almenn mál. Margt af því, sem hann skrifar, er fróð- legt, og alt er það læsilegt og skemtilegt. Nú síðast héfur komið út eftir hann bók, sem heitir: „Moldin kallar, og aðrar sögur“ (Útg. Ólafur Erlingsson). I henni eru níu skáldsögur, allar stuttar, en efnisgóðar og vel sagðar. G. J. hefur verið víðförull, dvalið árum saman í stórborgum Þýska- lands og ferðast víða um lönd. Atburðirnir, sem frá er sagt, gerast ýmist erlendis eða hjer heima, og það er heimþrá reikandi landa úti um heim, sem höf. tekst einna best að lýsa. í tvær sögurnar er efni tek- ið úr kirkjusögu Islands frá kaþólskum sið og hefur höf. mjög fengist við rannsóknir á sögu þeirra tíma. Myndin, sem hann bregður upp, í annari sögunni, úr klaust- urlífinu, af Birni munki og Maríulíknesk- inu, er ágæt, og hin sagan, um æfilok Gott- skálks biskups grimma, er skemtilega sögð, hvort sem hún hefur sanna atburði við að styðjast eða ekki. „Vinnuhendur" er góð saga úr nútímalífi Reykjavíkur. Yfir höfuð eiga þessar sögur það skilið, að þeim sje vel tekið. Eftir Halldór Kiljan Laxness er komin út ný bók, framhald af sögunni „Þú vínvið- ur hreini“, sem út kom í fyrra, og heitir „Fuglinn í fjörunni“ (Útg. Menningarsjóð- ur). Þessi skáldsagnabálkur frá 1931—32, er tvímælalaust besta skáldverk höfundar- ins. Ýmsir atburðir úr þjóðlífi nútímans eru dregnir þar fram í skýrum m.vndum, og mannlýsingar eru þar margar vel gerð- ar. Höf. gerir töluvert að því, einkum í síð- ari þáttum sögunnar, að draga inn í hana þjóðkunna menn og lýsa þeim svo, að allir kannast við þá, þótt hann gefi þeim ný nöfn, og stundum er það augljóst, að hann tvinnar saman tvo menn í einn. Þetta ljós- myndalán alþektra manna varpar raun- veruleikablæ yfir frásögnina, og sum- staðar verður að henni nokkur blaðagreina- keimur. En annars eru þær víða svo lát- laust og eðlilega feldar inn í söguna, að
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Lögrétta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.