Lögrétta - 01.03.1932, Qupperneq 74

Lögrétta - 01.03.1932, Qupperneq 74
259 LÖGRJETTA 260 jafnaðarmaður. Sforza greifi hefur einnig tekið fascismanum tak í bók sinni um „ein- ræðin í Evrópu“, (hún er nú til á ýmsum málum), snjallri bók, sem eins og vænta mátti er skrifuð af mikilli pólitískri þekk- ingu og reynslu og fjallar ekki einungis um fascismann, heldur einræðishreyfing- una í heild sinni. ítalskt ástand er skoðað frá nokkuð öðru og víðara sjónarmiði í nýrri enskri bók eftir Cicely Hamilton (Mo- dern Italy). Þar er á skemtilegan hátt lýst ítöisku lífi og menningu (t. d. skólamálum) og stilt í hóf lofi og lasti. Þýskur andí Það einræðisástand, sem greinilegast kemur fram í Ítalíu og Sovjet-ríkjunum, kemur einnig fram víða annarsstaðar. Jafn- vel ein helsta menningar- og dugnaðarþjóð álfunnar, í Þýskalandi, er að vissu leyti á takmörkum einræðis og óstjómar. Menning Evrópu mætti ekki við því að missa Þýska- land þannig. Evrópa stendur og fellur með Þýskalandi að ýmsu leyti, eins og t. d. Stegemann hefur sýnt í bók sinni: Deutsch- land und Europa. Knickerbocker, sem er þektur fyrir fróðlega og skemtilega bók um Rússland, hefur nú einnig skrifað bók um Þýskaland.(Germany-Fascist or Soviet). Hann lýsir ljóslega og fróðlega ástand- inu í Þýskalandi, því hvernig þar fara víða saman vandræði og eymd annarsvegar og vellíðan og búsæld hinsvegar. Hann nefnir Berlín sem dæmi — sultinn í norður Berlín, þar sem kommúnisminn á aðalathvarf sitt, þar sem mest er lifað á atvinnuleysisstyrkj- um, og svo vestur Berlín, þar sem lifað er vel. Hann lýsir einnig þýskum fyrirtækj- um, sem honum þykja fyrirmynd og ganga prýðilega, t. d. Zeiss í Jena, þar sem af- raksturinn gengur til endurbóta á starfinu sjálfu, til verkamannanna og til styrktar vísindum. Ernst Robert Curtius hefur skrifað dálitla athyglisverða bók um á- standið í Þýskalandi (Deutscher Geist in Gefahr). Honum þykir ýmislegt öfugt í Þýskalandi og segir að þýskur andi sje að vissu leyti í hættu staddur. Samt trúir hann svo á mátt og gildi þýsks anda, að hann heldur að Þýskaland sje nú svo að segja eini staðurinn þar sem virkilega sje sköpuð ný þekking og ný reynsla. Hann óttast það, eins og fleiri, að menningin sje að verða of vjelræn, en eigi fyrst og fremst að vera humanistisk. Það er at- hyglisvert hvernig nýr humanismi ryður sjer nú víða til rúms, ekki síst í höfuðvígi vjelamenningarinnar, Ameríku. Tíl ypusturheíms Menn hafa oft talað um Austurlönd, ekki einungis sem andstæðu Vesturlanda í menn- ingu, heldur einnig þannig, að þau stæðu þeim framar einmitt vegna þess, að menn- ing þeirra væri andlegri en vjelamenning Vesturlanda. Það er ekki auðgert, að meta þannig gildi menninga. Samt er það í raun og veru einskonar mat á menningunni, sem nú fer fram annarsvegar í reipdrættinum milli austrænna og vestrænna velda og hinsvegar heimafyrir í menningarlífi Austurlandaþjóðanna sjálfra, þar sem tog- ast á ný vestræn og gömul austræn áhrif. Þessi menningarviðskifti hafa komið skýr- ast fram í Japan og síðar 1 Kína. Þar er ennþá alt í óvissu, en eitt af því merkileg- asta, sem fram fer nú í menningarlífi heimsins, fer fram í Austurlöndum. Um þetta er nú skrifaður urmull af bókum. Af nýlegum bókum um sögu og menningu Jap- ana, má nefna eina enska, eftir Samson. Hann ber Japönum vel söguna, segir að þeir sjeu góðir og ástúðlegir menn, hug- rakkir og duglegir. Alkunnur Japani, dr. Inazo Nitobe hefur skrifað á ensku bók um Japönsku málin. f þeirri bók sjest það greini- lega og merkilega hvemig og hvaða áhrif átökin milli vestrænnar og austrænnar menningar hafa á menntaðan Japana, hvern- ig hann trúir á það, að þjóðinni verði best bjargað með samvinnu þeirra. Þetta hefur til skamms tíma verið skoðun flestra slíkra manna í austurlöndum og er að vissu leyti enn, þótt kínversk og einkum japönsk þjóð- crnis- og drotnunarhreyfing fari nú vax- andi, eins og sjá má á morði Inukai for- sætisráðherra, en að því stóð öflug þjóð- ræknishreyfing. Sumir Evrópumenn, sem
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Lögrétta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.