Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1902, Page 16

Eimreiðin - 01.05.1902, Page 16
96 Veröldin, sem vér lifum í, er þannig skipuð, að olnbogunum verður að beita og tylla sér á tærnar. Peir menti veröa troðnir undir, sem þetta láta ógert með öllu. — Svo dulur maður sem Sigurjón er, þá er þó skáldskapur hans enn þá duldari. Segja má, að hann eigi eklá brýnt erindi til almennings fyrir þær sakir; því flestir vilja að gullið liggi í gras- inu, en þykir ilt, að grafa eftir því undir fjallsræturnar. Sigurjón er eina íslenzka skáldið, sem ég veit til að ort hafi í anda »symbólistanna« svokölluðu. Skáldskapur þeirra er í lík- ingum og allur á huldu. — T. d. skal ég geta þess, að þegar Sigurjón yrkir um nýju tíðina, sem Harpa ber að sunnan, þá er átt við sól og vor nýrra hugsjóna, nýrra atvinnuvega o. s. frv. jafnframt því sem lýst er veðráttinni suðrænu. Sé þessa gætt og grafist eftir ímynd eða tákni hugsunarinnar, vona ég, að meðal- greindir menn fái skilið höfundinn, ef þeir lesa kvæðin oft, enda ber meira á þessum dularhjúpi hugsunarinnar í þeim kvæðum sum- um, sem hér eru eigi færð í letur. — Sigurjón hefir gengið á Eiðaskóla og hlotið þar ágætis- einkunn. — ÆSKUDRAUMAR. (Úr Einbúaljóðum). Réttu mér faðir, hlýja höna og hjálpaðu mér á veginn; og vit hvort hann dugar ei’, drengurinn þinn, þegar dýrust er von og megin. Réttu mér, bróðir hlýja hönd, svo höldum við saman á mið; og vit hvort hann bróðir þinn bregzt þér oft, þegar bylgjurnar skella á hlið. Réttu mér, vina, hlýja hönd úr höllinni þinni björtu; og Ijósara en bjart mun um lífs- starfið þar, er loga tvö samrýnd hjörtu. Réttu mér, vinur, hlýja hönd, svo herðum við andans skeið og betur en nokkur á undan oss við afmörkum tímans leið. Réttu mér, drottinn, hlýja hönd og hjálpaðu mér á veginn og vit hvort hann dugar ei’, drengurinn hinn, þegar dýrust er von og megin.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.