Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1902, Page 26

Eimreiðin - 01.05.1902, Page 26
io6 Hæfir ekki í stað að standa, stöðvuð ganga er afturför. Hver vill binda ungan anda inn við dauðra feðra kör? Ei má heimta hann hylli tjái hverju goði fólks og lands, né með augum sömu sjái sérhvert mál og faðir hans. Ei má'þrautin, kvölin, krossinn, kjark vorn buga, er gegnir verst. Altaf verða vænstu hnossin verðlaun þess, er dugar bezt. Enn er full af björtum baugum bjarmans vonar ríka mund. Ennþá varpar vítt frá haugum vafurloga um sæ og grund. Gegnt við fornu fúasprekin frjóvir kvistir rísa hátt. Gamal-kredda og barnabrekin býstium elda silfur grátt. Styrjöid geisar úti og inni, alt í kring með voða og fár. Einn þó sæmd og unað vinni annar tapar, hnígur nár. Altaf svíður undin, skaðittn. Eðli manna neitt er breytt. Práin heimtar þrent í staðinn, þegar henni veitt er eitt. Einum rómi seint mun sungin sæludrápa um þveran heim. Altaf verður ekka þrungin einstök rödd í hljómnum þeim. Hvers má þó með sönnu synja? sjóttir byrgja þoku og húm. Ei er neinum unt að skynja andans flug um tíma og rúm. Víst er það: á vitund engra vera mun sú stund og svið. þegar orðið: ekki lengra! er honum birt og staðið við. Raustin snjalla þegar þegir. þinn sem hvetur djarfa móð. Mun ei hitt, að enn þú eigir öll þín dýrstu gull í sjóð? Ná til æðri vegs og valda, vega djarft að tnargri þraut. rökkri svift um órof alda eiga glæsta sigurbraut. Kynslóðirnar koma og fara kvikna, lifa og hníga í dá; myndar þeirra flóð og fjara föllin ströng um tímans sjá. Lýsið, stjörnur, veg í vanda, varpa geislum, himinsól! Sækjast höfin okkar anda út að sínum fimbulpól. Gott er að vera enttþá ungur. eiga í vændum langan dag, numið geta nýjar tungur, nýja siði og háttalag, ráðið bót á mörgum meinum. margri heimsku úr völdum steypt, geta úr vegi velt þeim steinum, við sem aldrei gátum hreyft. Geta, þora, þekkja, kunna það, sem engum hugsast nú; opnað hjörtum heilsubrunna hreinni, en dauð og steinblind trú. Geta í þessum gömlu dölum glaðst við lífsins vatn og brauð, þar sem við af þrautakvölum þorsta og hungurs féllum dauð.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.