Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1902, Síða 61

Eimreiðin - 01.05.1902, Síða 61
Að því búnu kotn sólskinið og auðsveipnin. Hann fletti systur mína klæðum í hjartastað, lagði heyrnarauka við eyrað og hlust- aði á líffærin í brjóstinu. Já það er eins mig grunaði, sagði læknirinn, stundarhátt, við sjálfan sig. Hvað? Hvað grunaði yður? Að þetta væri, — já, það er byrjun á tæringu. Lungun eru veil — — En henni getur batnað, um að gera að hún éti nóg af nýju keti og drekki nýmjólk; já, hún ætti að éta lambaket. Læknirinn fékk nú systur minni hvítt duft í öskjum og lagöi lífsreglurnar niður fyrir brjóstið á henni. Svo ætluðum við að fara. — En þá kom mér þetta í hug: eitthvað mundi læknishjálpin kosta. Ég spurði lækninn eftir reikn- ingnum og fékk ég hann þegar. Á honum stóðu io krónur. Og þá átti ég ekki eina krónu til í eigu minni. Eg bað lækninn að umlíða mig um þessa peninga. En hann kvaðst ekki lána ókendum mönnum fé sitt. Pá fór ég til kaupmannsins, sem bjó gagnvart lyfjamanninum og bað hann ásjár. Tjáði ég honum vandræðin, að svo miklu leyti, sem ég taldi þýðingu hafa. Hann brást vel við og lánaði mér féð. En ég varð að veðsetja honutn hægri hönd mína. Systir mín gat ekki bragðað nýmjólk, þó að líf hennar lægi við. Og þegar að því kom, að lífláta skyldi lamb til næringar henni, vildi hún ekki það með nokkru móti. Er rétt að lífláta skepnu, til þess að halda lífi í annarri skepnu? spurði hún. Og í annan stað var henni sérstaklega ant um lömbin — síðan hún las um lambið í Opinberunarbókinni. Hún bar stöðugt réttlætið fyrir brjósti, og þráði það, vakin og sofin. En hún talaði meira um ranglætið, því henni fanst það vera ofan á og í hverju fyrirrúmi. Eg varð að friða systur mína með einhverjum ráðum. ?ess vegna stakk ég upp á því við hana, að við skyldum finna dóm- arann og tala við hann um réttlætið. Hún var fús til þess, enda var hún sérlega framgjörn, þegar

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.