Eimreiðin - 01.09.1916, Síða 13
169
skjöld sinn eða innsigli, er tákni eða bendi á nafn mannsins.
Annars er leitt, að ekki hafa verið rannsökuð íslenzk innsigli, sem
enn eru til frá miðöldunum. Sú rannsókn gæti verið til fróðleiks
að mörgu leyti.
Reyndar má nú segja sem svo: Fálkamerkið tilheyrir engri
ætt, en það var alment meðal íslenzkra höfðingja fyrrum, að hafa
fálka í innsigli sínu, og því er það réttmætt, að hafa hann í merki
landsins nú, þegar enginn einstaklingur getur gert kröfu til hans.
Og verður ekki í raun og veru neitt haft á móti því, ef merkið
er annars vel gert; en heldur er það langt sótt, og hefir ekki
heldur jafnaðarlega verið fært fram sem ástæða fyrir fálkamerkinu.
Ástæðan fyrir því var aðallega sú, að fálkinn væri svo sérkenni-
9. Innsigli Lofts ríka
(1419).
10. Innsigli Ólafs Jónssonar
(I4I9).
legur fugl fyrir ísland, og að íslenzkir fálkar hefðu verið svo vel
þektir erlendis á fyrri öldum; og svo það, að fálkinn táknaði sér-
staka eiginleika, sem ég skal ekki reyna að telja upp, því ég hefi
vikið að þeim hér á undan. það er víst, að fálkavéiðar voru á
íslandi, og íslenzkir fálkar voru fluttir til annarra landa, því að
þeir þóttu öðrum fálkum betri til veiða, Fálkans er og getið í
gömlum ritum; t. d. gerir Giraldus Cambrensis það á 12. öld.
Á gömlum landabréfum eru oft mynduð dýr, sem einkennileg
eru fyrir löndin. Eitt af hinum elztu landabréfum, þar sem fálk-
inn er sýndur, er kort Ancelino Dulcert’s frá 1339; x) en staða
myndarinnar er þar sú, að næst liggur að ætla, að hún eigi við
l) A. E. Nordenskiöld: Periplus. Stockholm 1897. VIII.