Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1916, Side 31

Eimreiðin - 01.09.1916, Side 31
87 Kapella 25 km., Rígel 24 km., Arktúrus ekki nema 8 km. og Pollúx 1 km. á sekúndu. Yfirleitt mun ferð stjarnanna að jafnaði vera 6—30 km. á sekúndu, en á seinni árum hafa sumar fundist, sem eru miklu hraðari í ferðum. Menn þykjast hafa séð, að hin- ar ungu, loftkynjuðu stjörnur eru seinfærastar, en þungar og þétt- ar stjörnur fara hraðast. Nýlega hefir hraði nokkurra stjarna ver- ið mældur á stjörnuturni Carnegie-stofnunarinnar á Mount Wilson í Ameríku, og hafa þar fundist stjörnur, sem hlaupa 141, 179, 233> 316 og ein jafnvel 325 km. á sekúndu; hin síðastnefnda upphæð er mesti hraði gegnum rúmið, sem mældur hefir verið hjá föstum iíkömum. Til samanburðar má geta þess, að hraðasta járnbrautarlest fer 25 m. á sekúndu, ofsaveður 20—35 m., hljóð- ið 331 m. (í lofti við O0); byrjunarhraði fallbyssu- og byssukúlu er 600—800 m., ferð jarðar kringum sólu 30 km. á sekúndu. Allar þessar ferðir eru smámunir einir í samanburði við hraða hinna fljótustu stjarna í geimnum, enda er flýtir þeirra svo mik- ill, að aðdráttarafl annarra himintungla getur engin áhrif haft á æði þeirra. Sú stjarna, sem harðast fer, er vanalega kölluð Groembridge 1830, eftir stjörnuskrá, þar sem staður hennar fyrst var ákveðinn;J) stjarna þessi er í Stóra-Bjarnarmerki, sést ekki með berum augum og er í 7. flokki; hún fer rúmar 7 bogasek- úndur á ári eða 790 sekúndur á öld; á hálfri þriðju öld mundi hún komast tunglsbreidd á himninum; sýnir þetta bezt, hve stað- breytingar stjarna eru litlar fyrir vorum sjónum; Neptúnus, sú pláneta, sem hægast fer, virðist þó svífa 800 sinnum fljótar um himininn en þessi stjarna; það er aðeins fjarlægðin, sem þessu veldur. Nú vita menn ekki með vissu, hve fjarlæg stjarna þessi er; það hefir ekki orðið mælt; en menn gizka á með mikilli sannsýni, að hún sé 4 eða 5 sinnum fjarlægari en hin næsta fastastjarna, sem mæld hefir verið. Hin sanna hreyfing stjörn- unnar í geimnum hlýtur því að vera geysilega mikil, er húti þó breytir stöðu sinni um 7 sekúndur, séð frá annarri eins fjarlægð eins og frá jörðu. Nú hafa menn fundið með ljóssjánni, að hraði stjörnu þessarar er 325 km. á sekúndu; hún hleypur 70 sinnum fjarlægð sólar frá jörðu á ári, eða á 5—6 dögum frá jörðu til sólar; ef jörð vor færi jafnhart, mundi hún ekki þurfa nema mánuð til umferðar sinnar um sólu. Tó þetta fjarlæga sólkerfi ‘) Stephan Groombtidge, enskur stjörnufræðingur, f. 1755, d. 1837.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.