Eimreiðin - 01.09.1916, Qupperneq 44
200
valda, að greiða félagstillög fyrir snauða félagsmenn að nokkrum
hluta; þó aldrei meira en */* af öllu árstillaginu.
STJÓRNARFYRIRKOMULAG SJÚKRASAMLAGANNA.
Hvert sjúkrasamlag velur stjórn á aðalfundi, sem halda skal
í febrúar ár hvert. í stjórninni sitja fimm menn, formaður og
fjórir meðstjórnendur. í*ar að auki eru tveir varafulltrúar kosnir
á aðalfundi.
Enginn getur að forfallalausu skorast undan kosningu í
stjórnina.
Kosningarnar gilda fyrir tvö ár í senn, þannig að annaðhvort
ár fara þrír menn og annaðhvort ár tveir úr stjórninni. Endur-
kosning má ávalt eiga sér stað.
Allar kosningar, bæði í stjórnina og til endurskoðunar, fara
ávalt fram skriflega.
Stjórnarfundir eru haldnir svo oft sem nauðsyn ber til, og
að minsta kosti einu sinni á hverjum þremur mánuðum.
. Ef einhver stjórnarfulltrúa mætir ekki á þremur stjórnarfund-
um í röð, er hann rækur úr stjórninni, og kemur þá varafulltrú-
inn í hans stað.
Auk stjórnarinnar kýs hvert sjúkrasamlag sér starfsmenn á
aðalfundum. Helztir starfsmannanna eru féhirðir og einn eða fleiri
innheimtumenn tillaganna. Féhirðirinn verður að vera reiknings-
fróður, og hann verður að leggja fram fjárupphæð, stærri eða
minni, í hendur stjórnarinnar, sem tryggingu fyrir fé því, er hann
hefir undir höndum. Hann hefir ábyrgð á öllum eignum sjúkra-
samlagsins og er skyldur að sjá um, að sjóður þess sé ávaxtaður
í öruggum verðbréfum eða sparisjóðum. Hann á að skrá allar
tekjur og gjöld sjúkrasamlagsins í bók, sem bæði stjórnin og
endurskoðunarmennirnir ætíð hafa rétt til að sjá og gagnrýna.
Féhirðir er launaður með 20 aurum fyrir hvern félagsmann
árlega.
Endurskoðunarmennirnir, sem kosnir eru til tveggja ára í
senn, eins og stjórnin, hafa rétt til, hvenær sem þeim sýnist, að
rannsaka allar bækur og skjöl féhirðis og stjórnarinnar. Peir fá
svolitla þóknun fyrir starfa sinn.
Formaður og aðrir stjórnarfulltrúar fá vanalega ekki, eða hafa
hingað til ekki fengið, neina þóknun fyrir starfa sinn, sem þó oft