Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1929, Side 40
40
Sveinn Pálsson
hjá Lýð, hin dó óuppbætt. Jörðin var úttekin í fráveru
Sveins og án hans undirskriftar, en landskuld mátti hann
svara og leigum til Lýðs meðan hann lifði, par til góssið
var sett undir administration hjer um 1813.
Þetta sama sumar uppátók Sveinn sjer bótaniskt
ferðalag hjer um fjöll kringum jökla og vestur undir
Heklu, að milligöngu og tilmælum biskups Vídalíns fyrir
enskan reisandi hiann að nafni Hooker, og innvann sjer
par við 80 rd. s.
Árið 1810 bar fátt til frjetta fyrir Svein utan að
hann í maímánuði var kallaður suður að Nesi af skóla-
bróður sinum fyrrum á Hólum, assessor Benedikt Qrön-
dal, veiks í nokkurskonar geðveiki; skánaði honum um
tíma, en aldrei til fulls meðan hann lifði.
í peirri ferð kyntist Sveinn við 3 enska náttúrureis-
endur í Reykjavík, nefnilega baronett Qeorge Mackenzie,
læknir Henry Holland og student Richard Blight, og
skrifaði íyrir pá nokkurskonar vegarollu, eður hvar peir
skyldu helst ferðast um til pess eður pess, og ábataðist
Sveinn pá um 45 rd.1)
Árið 1811 í apríl mánuði var Sveinn heimtaður af
viðkomandi sýslumönnum í Rangárvalla og Árnessýslum
pangað úteftir til að skoða uppkominn sjúkleika á nokkr-
um kvennmönnum, er hann áleit venerisk smitte (fransós),
og kom fyrir daginn, að pær höfðu haft samræði við ís-
lenskan unglingspilt, sem inn kom matrós með Eyrar-
bakka skipi. Var Sveinn svo heppinn með tilheyrandi
meðölum og forskriftum að koma í veg fyrir frekari út-
!) í blaði því, er kallaðist Dagen fyrir 1810, Nr. 82, stóð
þetta, dregið úr sendibrjefi frá London, dat. 27. apríl s. á.: „De
reiste tii Island deels paa læide Sager, deels til at uddele alskens
Fornödenheder blandt Indbyggerne“. En hjer fengu þeir þann
vitnisburð: Þeir reistu hjer sem húsgangar! Þáðu alt, endur-
guldu ekkert! gáfu ekkert! ttmdu ekki að ríða! spurðu eftir fáu
nema brennisteini!