Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1938, Side 37
39
samkvæmt rannsókn Chr. B ar t h e l s og G. B j dlf-
ves (25), á 133 smitunartilraunum í Svíþjóð, gáfu 121,
eða 91%, jákvæðan árangur og sumir flokkar, svo sem
smitun á lusernum 100% og á grænfóðurbelgjurtum
80% vaxtarauka umfram ósmitað að meðaltali. Til-
raunir þessar voru gerðar á venjulegri akurjörð, þar
sem er meira eða minna, bæði af N-næringu og rótar-
bakteríum, í jarðveginum. Að árangurinn verður enn-
þá meiri, ef bæði N-næringu og rótarbakteríur skortir
í jarðveginn, sýna kertilraunir þær, með ræktun belg-
jurta í N-snauðum sandi, sem skýrt hefur verið frá (sjá
töflu III, IV og IX).
Tafla X. sýnir árangurinn af tilraunum Virtanens
og v. Hausens (24) með samanburð á smituðum og ó-
smituðum rauðsmára og ertum, ræktuðum í kerum í
akurjörð, þar sem þessar jurtir höfðu náð góðum
þroska án smitunar. Notaðir eru til smitunar úrvals-
stofnarnir A VI og H IX (sjá töflu IX).
Lífsskilyrði rótarbakteríanna eru eðlilega nátengd
lífsþörfum þeirra jurta, sem þær eru tengdar við. G.
B j al f v e (23) telur, að helstu skilyrðin fyrir mynd-
un og eðlilegum þroska rótaræxla séu þessi, auk þeirra,
sem þegar hafa verið talin:
1. Smitunartíminn. Smitunin þarf helst að fara fram
jafnótt og rætur jurtanna myndast. Rótaræxlin mynd-
ast aðeins á nýjum rótum, aldrei á gömlum, en rótar-
æxli, sem myndast neðarlega á rótunum, virðast ekki
gera sama gagn og þau, sem ofar myndast. Chr.
B ar th e l og G. B j alf v e (25) fundu, við ræktun á
hvítsmára í dauðhreinsuðum „Agar“, við mismunandi
smitunartíma, eftirfarandi N í plöntunum:
Ósmit- Smitun eftir sáningu:
að Strax 10 dagar 20 dagar 30 dagar
Mg N. 25 1.04 0.75 0.70 0.41