Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1938, Page 141
Skýrsla
um starfsemi Búnaðarsambands Eyjafjarðar árið 1938,
I. SKÝRSLA STJÓRNARINNAR.
I aðalatriðum hefur starfsemi sambandsins á þessu
ári verið með sama hætti og síðastliðið ár og er því
ekki ástæða til að fara um hana mörgum orðum.
Lang-veigamesti þátturinn í starfseminni eru störf
ráðunautanna, en eins og vikið er að í síðustu skýrslu,
hefur sambandið á þessu ári haft tvo starfsmenn, þá
Eyvind Jónsson, landbúnaðarkand. og Jónas Pétursson,
búfræðing, í þjónustu sinni. Af nýjum verkefnum, sem
þeir hafa fengist við má nefna gróðurrannsóknir á ný-
ræktum og túnum, sem byrjað var á síðastliðið sumar
og sem verður haldið áfram á komandi sumri. Um störf
ráðunautanna vísast til skýrslu þeirra, sem fer hér
á eftir.
Sambandið hefur styrkt byggingu nokkurra kartöflu-
geymsla, úthlutað rófnafræi ókeypis og styrkt kaup
á einni vél til að taka upp kartöflur. Þá hafa ennþá
verið veittir styrkir til að gera votheysgryfjumót, nokk-
urir bændur fengið styrk til kaupa á skotskum hrútum
og sauðfjárræktarbúið á Þórustöðum styrkt eins og að
undanfömu.
Skógræktarfélag Eyjaf jarðar, Heimilisiðnaðarfélag
Norðurlands og Fiskiræktarfélag Ólafsfjarðar hafa not-
ið stuðnings frá Sambandinu.