Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1938, Síða 153
148
II. FUNDARGJÖRÐ
aðaljundar Búnaðarsambands Skagfirðinga 1938.
Ár 1938, fimtudaginn þ. 17. mars, var aðalfundur
Búnaðarsambands Skagfirðinga settur og haldinn á
Sauðárkróki.
Fundinn setti formaður sambandsins, Jón Konráðs-
son, Bæ. Bauð hann fundarmenn velkomna, þar á með-
al fyrverandi og núverandi ráðunauta sambandsins,
sem báðir voru mættir á fundinum.
Þá tilnefndi hann fyrir fundarstjóra Gísla Sigurðs-
son á Víðivöllum, og var það samþ. í einu hljóði.
Tilnefndir og samþ. skrifarar fundarins voru þeir:
Stefán Vagnsson og Tobias Sigurjónsson.
1. Þá voru lögð fram og lesin upp kjörbréf fulltrúa.
Samkvæmt þeim voru rétt kjörnir til fundarins frá:
Bf. Holtshrepps: Jón Gunnlaugsson, Móagili, Jón
Arngrímsson, Brúnastöðum.
Bf. Haganeshrepps: Hermann Jónsson, Ysta-Mói.
Bf. Fellshrepps: Eiður Sigurjónsson, Skálá.
Bf. Hofshrepps: Jón Jónsson, Hofi, Jón Júlíusson,
Grindum, Björn Jónsson, Bæ, Steinþór Jónsson, Graf-
argerði, Páll Erlendsson, Þrastarstöðum.
Bf. Óslandshlíðar: Sölvi Sigurðsson, Undhóli, Loftur
Rögnvaldsson, Óslandi.
Bf. Hólahrepps: Björn Símonarson, Hólum, Árni
Sveinsson, Kálfsstöðum.
Bf. Viðvíkurhrepps: Sigurmon Hartmannsson, Kolku-
ós, Sverrir Björnsson, Viðvík — varam. —
Bf. Akrahrepps: Jóhannes Steingrímsson, Silfrastöð-
um, Gísli Sigurðsson, Víðivöllum, Jóhann Sigurðsson,
Ulfsstöðum, Magnús Gíslason, Vöglum.
Bf. Lýtingsstaðahrepps: Jóhannes Kristjánsson,
Brúsastöðum, Magnús Sigmundsson, Vindheimum,