Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1938, Side 159
154
50 tn. af kartöflum, gegn sama geymslugjaldi og hlut-
hafar í kartöflugeymslunni greiða, enda hafi þeir pant-
að geymslurúm fyrir 1. sept. ár hvert“. Samþykt.
d. Námsskeið í meðferð og matreiðslu grænmetis:
Framsögum. Hermann Jónsson lagði fram þessar til-
lögur:
1. „Búnaðarsamb. styrki „Hið Skagíirska kvenfélag“
á Sauðárkróki, á yfirstandandi ári, með 200 króna
framlagi, til að halda námsskeið í meðferð og mat-
reiðslu á grænmeti, enda skuldbindi félagið sig til að
taka einn nemanda á námsskeiðið úr hverju bunaðar-
félagi á sambandssvæðinu".
2. „Stjórn sambandsins heimilast að greiða kvenfé-
lagi eða samstæðum hóp kvenna, austan Héraðsvatna,
alt að 200 krónur til samskonar námsskeiðs, ef umsókn
berst frá félagi, sem getur uppfylt sömu skilyrði, sem
skagfirská kvenfélaginu eru sett. Verði upphæð þessi
notuð skal hún greiðast af eftirstöðvum í fjárhags-
áætlun". Samþykt í einu hljóði.
e. Garðyrkjuáhöld: Framsögumaður Haraldur Júlíus-
son flutti svohljóðandi tillögu frá nefndinni:
„Fjárhagsnefnd leggur til, að á fjárhagsáætlun séu
teknar 100 krónur, sem varið sé til styrktar kaupum á
garðyrkjuáhöldum, þannig, að ef búnaðarfélög gangast
fyrir kaupum á slíkum áhöldum, fái þau sem styrk alt
að 20% af innkaupsverði, sem svo meðlimir félaganna
verði aðnjótandi, sem áhöldin kaupa. Til þess að geta
fengið styrk greiddan, verður viðkomandi búnaðarfélag
að sýna stjórn sambandsins innkaupsreikning“. Samþ.
með samhljóða atkvæðum.
f. Salernabyggingar: Framsögumaður Jón Arngríms-
son lagði fram frá nefndinni svofelt álit:
„Búnaðarsambandið getur ekki orðið við ósk Bún-
aðarfélags Óslandshlíðar, um styrk til §alernabygginga.