Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1977, Page 65

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1977, Page 65
UM FÓLKSFIÖLLDA Á SUDURLANDE ... 1781 65 Af þeim skrifum er augljóst, að hann studdi hina hvassyrtu bæna- skrá. Magnús Stephensen var skjalinu samþykkur, hann tók mikinn þátt í deilum sem af þessu spunnust og sparaði ekki stóryrðin. Þetta var þjóðarskjal og hefur aldrei hlotið þann sess í sögunni sem því ber. Skjalið vakti gífurlega reiði stjórnarinnar í Kaupmannahöfn, og nú gætti hún betur en nokkru sinni hagsmuna kaupmanna, sem voru og hagsmunir margra í stjórnarkerfinu. Og engin lagfæring fékkst. En skjalið sýnir fullvel, hvar vandinn lá raunverulega. Þannig lýkur þætti Hannesar Finnssonar um hallærin, þó að óbeint sé. I lok Mannfækkunar segir hann: Island fær tídum hallæri, en eckert land í Nordr-álfunni er svo fliótt at fiölga á ný manneskium og bústofni sem þat, og er því eigi óbyggiandi“ (37. gr.). (Þetta kemur vel heim við hagfræðitölur frá miðri 19. öld.) Það er mikil hógværð í þessum orðum biskups. Rannsóknin sem kemur fram í báðum umræddum verkum ber vott um hlutlægni, þar sem rækilega er vísað til heimilda og samanburður gerður við önnur lönd. Hann ályktar sem sé, að landið sé kostamikið og íbúum sínum betra en mörg önnur. Hannes Finnsson skrifaði tvö rit um hallærin, eins og þegar hefur verið getið. Var Um mannfækkun af hallærum á Islandi gefið út sem fyrr segir árið 1796 og þýtt á dönsku 1832 afHalldóri sýslumanni Einars- syni. Önnur prentun kom svo 1970 í útgáfu Jóns Eyþórssonar ogjóhann- esarNordals meðformála eftir þann síðarnefnda. Hitt ritið, Um fólks- fjölda á Suðurlandi og mannfækkun þar 1781, birtist nú á prenti í fyrsta sinn. Það er varðveitt í eiginhandarriti Hannesar, aðvísu talsvert skert, í handritasafni Landsbókasafns með safnmarki Lbs. 340 b 4to. Það er á 44 blaðsíðum, og hefur biskupinn stundum skrifað á sendibréf og um- slög. Á stöku stað hafa göt verið á pappírnum, og hefur biskup skrifað í kringum þau. Handritið hefur vöknað, og bera margar blaðsíður þess merki. Fúi er talsverður, svo að eyður eru í handritinu á nokkrum stöðum og efsti hluti nokkurra blaða hefur horfið með öllu. Auk þess hefur blekið í einstökum stöfum eða orðum máðst út. Hornklofar eru settir utan um, þegar reynt er að lesa í málið eða tekizt hefur að fylla í eyður úr öðrum heimildum. Stafir eða orð sem vantar í frá upphafi eru sett innan oddklofa. Punktar innan hornklofa [....] eiga að sýna eininga (stafa) fjöldann sem vantar í handritið á Jjeim stað, eftir því sem næst verður komizt. í hverri línu handritsins eru 36-38 einingar. Að lokum þakka ég forstöðumanni handritadeildar Landsbókasafns, Grími M. Helgasyni cand. mag., hjálp við handritalestur.

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.