Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1977, Blaðsíða 68
68
HANNES FINNSSON
Fólked taldest frekum 200 árum ádur (§. 3), enn ad Tíun[d]ar má[t]-
enn hafe enn nú same vered og fyrr, má siá af dæme Gissurar Galla i
Videdalstúngu, sem um þessar Munder var sóktur um oflitla Tiund,
enn tiundade þó tólf Hundrud Hundrada (7). Hvör Tiund ómögu-
lega gat hiá einum Manne vered einasta af Kvikfe.
§• 5.
Til ad sýna miked meire Fólksfiöllda ad fornu á Jslande, enn á nær-
verande Ölld, færa Menn til þá stóru Flocka sem Fornalldarmenn
höfdu ser til Fylges og á stundum i Heimbodum ser til Sóma. Þad
fiölmennasta Heimbod sem um er geted i Sögum vorum, er þad sem
þeir Hialltasyner erfdu med Födur sinn, voru þar tólf Hundrud
Manna. Enn þar marger voru lángt ad komner, verdur eckert víst
þar af dreged. Stórer Strídsflockar eru her til hentugre, þvi i þeim
voru einasta vopnbærer Karlmenn á besta Alldre. Ecke gegne eg
Heimsku þeirre sem finst i Arthurs Sögu (8) ad Jslendingar nockru
sinne hafe sendt 20 Þúsunder Stridsmanna til ad vinna Rómveria.
Enn hitt er sannara ad sá nafnfræge Snorre Sturluson reid á stundum
til alþinges med átta Hundrudum Manna, og ad 1234 hafde Sig-
hvatur Sturluson átta Hundrud enn Kolbeinn Arnórsson siö Hundrud
vopnadra Manna á alþinge; Enn þar færster af þeim voru af Sudur-
lande, læt eg hiálída um þad ad skrifa.
§. 6.
Þeir stærstu Strídsflockar sem vorar Sögur umgeta komu saman á
Alþinge 1526, þá biskupar vorer ætl[u]du ad láta sverfa til Þrautar7,
og Ögm[un]dur hafde þrettán, enn Jón átta Hundrud Manna (9).
Þesse Flockur biskups Ögmundar er bæde sá stærste, og lika sýnest
eins og Megned af hönum hafe vered af Sudurlande, hvörs vegna eg
(7) Laurentius Biskups Saga. M. S
(8) Galfred: Monumethens: libr. 9. Cap: 10. Edit. Comelini p: 67 Arthurus subjugatis
totius Hiberniæ partibus, classem suam direxit in Islandiam, eamqve debellato populo
subjugavit. Ex in divulgato per ceteras insulas rumore qvod ei nulla provincia resi-
stere poterat Doldavius Rex Godlandiæ et Gunfasius Rex Orcadum ultro venerunt,
promissoqve vectigali, subjectionem fecere. Cap. 12. pag: 70. Malvasius Rex Islandiæ
i'uit præscns in concilio Arthuri. cap. 19. pag: 73. Islandi viginti millia militum ad
Romanos subjugandos miserunt. Libr. 11. cap. 7. Malgo etiam Islandiam adjecit,
dirissimis præliis potestati suæ.
(9) Þetta var i eitt einasta Skipte, þvi annars reid Jón biskup Arason eige sidvanalega8
med fleiri menn til Alþinges enn tvö Hundrud Manna, sumer segia Jón biskup i
þetta Sinn hafe haft 9 adrer 11 Hundrud.
7 Olan línu er skrifað „stáls“.
8 Skrifað milli Iína með mjórri penna.