Réttur


Réttur - 01.12.1916, Page 7

Réttur - 01.12.1916, Page 7
121 IV. Sumir fjármálamenn landsins og fylgismenn íslandsbanka hafa töluvert gert að því, að telja mönnum trú um, að bankinn væri nú að mestu orðinn eign íslendinga, og enn- fremur að þjóðin hefði »lánað íslandsbankahlutabréfin (3 miljónir króna) erlendis«. F*etta er að vísu aðeins hálfur sannleikur. Sem peningaverzlun er bankinn að mjög litlu leyti eign íslendinga. Dönsku hluthafarnir eiga mestan gróð- ann af rekstri hans, og einnig með seðlaútgáfuréttinum mestan ágóða af aukningu peningaverzlunar í landinu enn um 20 ára bil. Hefði landið fengið lánið með venjulegum afborgunar- skilmálum og þjóðin sjálf stofnað með því bankann og haldið seðlaútgáfuréttinum, þá var saklaust að nefna það lán blátt áfram, eins og hr. I. E. gerir. En vegna óbæri- legu skilyrðanna er það óneitanlega falskt. Þegar bankinn var stofnaður fyrir 12 árum síðan, voru alþingismennirnir svo svartsýnir og trúlausir á fyrirtæki og framfaramöguleika þjóðarinnar, að eigi þótti vogandi að auka seðlaveltu Landsbankans, né efla hann, svo að hann gæti fullnægt brýnustu þörfum og peningaeftirspurn landsmanna. Nú sýnir reynslan, að íslandsbanki gefum hluthöfum 6% í hreinan ársarð af peningaverzluninni og auk þess er vara- sjóðurinn ca. 464 þús. kr. Ennfremur eru nokkrar líkur fyrir, að ársarðurinn muni töluvert aukast næstu árin. Pað setti því að vera augljóst öllum þingmönnum og þjóðinni í heild sinni, hversu áhættulítið og hagfelt það er fyrir land- ið að eiga sjálft peningastofnanirnar og reka þær á eigin ábyrgð. Áður hefir verið bent á, að þjóðin væri langt komin að því marki, að gera vöruverzlunina innlenda; næsta skrefið er peningaverzlunin, helzta sjálfstæðis- og metnaðarmálið er að gera tekjurnar af henni þjóðareign — losa landið við danska peningahandraðann, hlutafélagsbankann. En hvernig á að koma þjóðbankamálunum á réttankjöl? Mér finst þar vera um tvennskonar Ieiðir að ræða. í t'yrsta

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.