Réttur - 01.12.1916, Side 18
- 132 -
óþarfur sparnaður hjá sumu fólki (margir þeir, sem ferðast
í lest, eyða miklu í áfenga drykki). En raunar hlýtur þetta
svona til að ganga, því að fólksflutningarnir eru mestir á
vissum tímum árs, vor og haust. Og þá eru hundrað menn
um hver tíu sæmileg rúm, sem til eru í strandferðaskipun-
um. í lestinni er hið mesta óloft af ryðguðum járnveggj-
unum, sem klístraðir eru ýmsum lyktarsterkum efnum úr
varningi þeim, sem endranær er geymdur i farmrúminu.
Stundum er lestin hálffull af ýmsu skrani, jafnvel hestar og
kýr í grindum innan um farþega. Á gólfinu er flatsæng við
flatsæng, og kofort á milli. Par er hvað innanum annað,
konur og karlar, börn og gamalmenni. Flest alt fólkið er
sjóveikt, sem vonlegt er, með þessum aðbúnaði. Eykur það
drjúgum óloftið og óþægindin fyrir alla sem þarna eru
samankomnir. Stundum korhast ekki allir í lestina, og er
þeim þá hrúgað á þilfarið og tjaldað yfir. Mun þetta hafa
verið gert á tveim stærstu skipunum, sem koma hingað til
lands, á leið frá Austfjörðum til Reykjavíkur haustið 1915.
Ef skip, sem svo eru hlaðin, hreppa ósjó, sem oft vill
verða á haustin, geta menn giskað á, hve góð er vistin í
flatsængunum niður í byrgðri lestinni, eða á þiljum uppi,
undir tjöldum, sem sjórinn gengur yfir. Pað er ómögulegt
að gera sér í hugarlund, hve lamandi slíkt ferðalag er fyrir
sjálfsvirðingu og siðgæði þeirra er verða að sætta sig við
þvílíkan farkost í hvert sinn sem þeir fara langferð.
Þá kemur röðin að póstgöngunum. Næstum allur póstur
er fluttur landveg, á áburðarhestum, bæði vetur og sumar.
Póstferðirnar eru rúmlega ein í mánuði. Varla er þar um ann-
an flutning að tala en bréf og blöð. Böglar eru of þungir
og fyrirferðarmiklir til þess að þeim verði til muna komið
með landpóstunum, og póstferðir létta, að heita má, ekkert
fyrir mannflutningum hér á landi, eins og tíðkaðist víða
erlendis, meðan póstur var fluttur í hestvögnum. Höfuð-
gallinn á póstfyrirkomulaginu er þó það, hvað það er sein-
fært. Maður í Reykjavík skrifar norður í Vatnsdal og þarf
að fá svar. En svarið kemur ekki fyr en eftir 7—8 vikur. Og
ef maður í Árnessýslu á bréfaskifti við Norður-Þingeying,