Réttur


Réttur - 01.12.1916, Side 31

Réttur - 01.12.1916, Side 31
- 145 - vilji þess vegna fórna allmiklu af almanna fé til að koma samgöngunum í þetta horf. Eitt af því, sem menn þurfa að skilja er það, að enginn partur af árinu er »dauður« í viðskiftalegu tilliti hér á landi, enn síður, að svo eigi að verða til frambúðar. Þjóð sem lifir, þarf altaf að geta hreyft sig, sent burtu vörur og fengið vörur á öllum árs tímum. Um leið og tækifærið kem- ur, skapast þörfin. Um leið og Borgfirðingar og Mýramenn fá vikulega örugga sjóferð til Reykjavíkur, breyta margir bændur búskaparlagi sínu til bóta og senda á öllum tímum árs nýtt smjör, skyr og kjöt til Reykjavíkur og njóta þannig góðs markaðs, sem aðrir Iandshlutar ekki ná til, vegna sam- gönguleysis. Með hröðum og öruggum samgöngum, eins og hér er lýst, mundi nýtt líf færast í þjóðina og alla at- vinnuvegina. Eins og mörgum mun kunnugt, er bankamálið eitt hið þýðingarmesta mál, sem framfaramenn Iandsins hafa nú með höndum. Rar er stefnt að því, að auka fjármagn landsins, innan skynsamlegra takmarka, en einkum að koma betra skipulagi á meðýerð þess fjár, sem í veltu getur verið í land- inu. Nú kemur það mest að notum kaupmönnum og þeim, sem reka útgerð í stórum stíl, en ræktun landsins er höfð útundan. Vafalaust geta bændur mikið gert til að breyta þessu, með pólitískum samtökum. En altaf verður það þó aðalatriði hverjum þeim atvinnuvegi, sem vill eiga greiðan aðgang að rekstursfé bankanna, að vörurnar, sem framleidd- ar eru, komist ýljótt og örugglega á markaðinn. En úr þessu verður ekki bætt, að því er landbúnaðinn snertir, nema með miklum samgöngubótum. Til að skiija betur, hve mikla þýðingu strandferðakerfi þetta mundi hafa, vil eg nefna tvö héruð á Norðurlandi, Skagafjörð og Eyjafjörð. í báðum þessum sýslum er unt með tiltölulega litlum kostnaði að auka grasræktina stór- kostlega með áveitum. En vegna ónógra afrjetta getur sauð- fénu eða hrossum ekki fjölgað ýkjamikið, svo að hagur sé að. Rar hlýtur því í framtíðinni að verða mikil kúarækt og 9

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.