Réttur


Réttur - 01.12.1916, Page 51

Réttur - 01.12.1916, Page 51
- 165 - mikil viðbrigði. En þá fundu Danir upp á því snjallræði, að flytja vörur, sem til íslands áttu að fara, fyrir ekkert frá Þýzkalandi til Danmerkur. Og fengust þær þannig fluttar fyrir sama gjald hingað og þær, sem fóru beina leið. Var þessu tekið feginshendi af ýmsum, og talið sönnun þess, að samgöngur beina leið til Þýzkalands væri okkur óþarfar. En sú raun varð á, að þvínær jafnskjótt og Þýzkalands- ferðir »Thore« hættu, var »fríflutningurinn« danski upphaf- inn. Og eftir það varð að sæta sömu ókjörum með vöru- flutninga frá Þýzkalandi og áður, nema verri væri. — í byrjun Evrópustríðsins, þegar margir tóku að ótt- ast skort á vörum, var það ráð tekið, sem kunnugt er, að senda skip vestur um haf eftir matvörufarmi. Undirbúning- ur var svo lítill, að skipið hafði mjög lítið til að flytja héð- an; og þegar kom til New-York var eftir að gera öll inn- kaup á vörum, og tafði það ferðina mjög. Þrátt fyrir það varð árangurinn sá, að vörur þær, sem skipið kom með, urðu miklu ódýrari en samskonar vörur, sem um það leyti komu frá Danmörku. Nokkur fleiri dæmi mætti telja lík þessu, en eigi er tækifæri til þess að sinni. Niðurstaðan af því, sem að framan er ritað, getur eigi orðið önnur en þessi> 1. Leiðin til Danmerkur er lengri en til annara landa, sem okkur er auðvelt að skifta við og senda skip til. 2. Þeir staðir og þjóðir, sem okkur eru nær, bjóða betri verzlunarkjör en Danir gera eða geta gert. Markmiðið, sem íslendingar þurfa nú að setja sér, er það að flytja viðskiftin þaðan, sem þau nú eru, til hentugri staða. Og þeir staðir, sem við eigum að hafa viðskifti og sam- göngur við, eru, að mínu áliti: Bretland, Þýzkaland, Skand- ínavía (Norvegur og Svíþjóð) og Norður-Ameríka. Við Bretland verður í framtíðinni að vera aðalpóst- og fólksflutningasamband milli íslands og útlanda. Er þangað skemst sigling, og þaðan eru beztar samgöngur við um- heiminn. Auk þess er þar framleitt mikið af þeim vörum, sem mest farmrými taka, t. d. kol, salt, járn. Pær vörur, er

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.