Réttur - 01.12.1916, Qupperneq 52
— 166 -
við kaupum eigi þaðan, sem þær eru framleiddar, er að
sjálfsögðu bezt að kaupa af Bretum. Má þar til telja ýms-
ar kornvörur, nýlenduvörur, ávexti o. fl. Fjölda af iðnaðar-
vörum verður líka heppilegast að fá þaðan, að minsta kosti
fyrst um sinn.
Þýzkaland hefir í seinni tíð mjög rutt sér til rúms á
heimsmarkaðinum með iðnaðarvörur, og verður að hafa
þangað skipaferðir eftir því, sem reynslan sýnir að nauð-
synlegt er. Ymsir búast líka við því, að þegar ófriðnum
lýkur, verði þar bezti markaðurinn fyrir margar íslenzkar
vörur, einkum kjöt ogjisk.
Frá Norvegi og Svíþjóð verður að sjálfsögðu, eins og
að undanförnu, að kaupa allskonar trjávið. Ennfremur þann
iðnaðarvarning, sem þar fæst bétri en annarstaðar, t. d.
stálvörur. Vegna frændsemi qg líkra staðhátta er okkur líka
nauðsyn að hafa samband við þessi lönd, einkum Norveg.
Pá er eftir að minnast Vesturheims. Áður en ófriðurinn
hófst, kom víst fáum til hugar að þangað myndi snúið
viðskiftum okkar fyrst um sinn. En síðan hafa verið farnar
þangað fjórar ferðir, og gefið bezta árangur. Er enginn vafi
á því, að framvegis mun viðskiftum okkar beint þangað
mejra eða minna. Ekki sízt þegar Hudsonsflóa-brautin verð-
ur fullgerð. Þá verður ísland sjálfkjörin miðstöð fyrir verzl-
un Canada og Norður-Evrópu. En um það verður betra
tækifæri að ræða síðar.
Skipaferðir til flutnings á farþegjum, pósti og vörum fyr-
ir ísland verða því að komast í það horf, að milli íslands
og Bretlands séu reglubundnar póstferðir með vönduðum
farþegjaskipum; til Þýzkalands og Vesturheims gangi flutn-
ingaskip eftir því, sem þörf gerir nauðsynlegt, og í milli
Norvegs og íslands gangi eftir áætlun vöruflutningaskip
með nokkru farþegjarúmi (t. d. lík skipum þeim, sem Björg-
vinarfélagið hefir undanfarið haft í förum hingað). Og til
strandferða séu notuð hraðskreið eimskip til að flytja póst
og farþegja, en vörur séu fluttar á sérstökum hægfara skip-
um, sem sennilega mundi hentugast að væri »mótorskip«
eða seglskip með hjálparmótor.