Réttur


Réttur - 01.12.1916, Page 91

Réttur - 01.12.1916, Page 91
Neistar. i. Menn, peningar, land. Nýjustu hagskýrslur fyrir Winnipeg sýna, að iandið, sem borgin stendur á, hefir síðastliðið ár hækkað í verði um kr. 37,000,000. Húseignirnar hafa líka aukist, en það er éft- irtektaverður munur á þessum eignategundum. Viiðingaverð allra húsa í borginni er hærra, sökum nýrra bygginga. Þau hús, sem til voru í fyrra, eru minna virði nú en þau voru fyrir ári síðan. Byggingar lækka ætíð í verði við að eldast. En þannig er því ekki varið með landið. Landið í Winni- peg er ekki stærra en í fyrra, en það er eldra, en verðmæti þess hefir aukist um 37 miljónir kr. á árinu. Hvernig getur nú staðið á þessu? Aðrar tölur í hagskýrslunum sýna, að íbúum Winnipeg- borgar hefir fjölgað um næstum því 20,000. Hvaða samband skyldi vera milli fólksfjölgunarinnar og verðhækkunarinnar á lóðunum. Hver áhrif á lóðaverðið heldur þú, lesari góður, að 20,000 fólksfækkun hefði haft? Hún hefði valdið yerðlækk- un. Allir lóðaeigendur geta frætt þig á því. Það er ákveðið samband milli fólksfjöldans og verðsins á landinu. Skýrslurnar sýna, að hver innflytjandi eykur verðmæti landsins í borginni um 1850 kr., en þetta verð- mæti verður ekki hans eign.

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.