Réttur - 01.01.1974, Síða 72
Yfirstéttir illa til
frelsisbaráttu fallnar.
,,— En, máske menn bíði þess,
að hinir svonefndu fyrirliðar þjóð-
arinnar, yfirvöldin, gangi á undan
og leiði þá til frelsis og farsældar?
— Þá megi þér að vísu lengi bíða,
bræður góðurl því svo er langt frá
að þeir sé líklegir til að gerast
oddvitar, að þeir fara varla I flokk
yðvarn nema neyðin þrýsti að
þeim, það leiðir af stöðu þeirra og
hugsunarhætti, um það mætti
reynslan hafa sannfært oss nóg-
samlega."
i „Ávarpi til lslendinga,“ i
Nýjum Félagsritum 1849.
Undirgefní undir drottna á
Suðurnesjum forðum daga
[Á Kálfatjarnarþingi 27. júli 1699
var Hólmfastur Guðmundsson húð-
strýktur af grimmd eftir kröfu hins
illa þokkaða kaupmanns Knud
Storms, en kaupmaðurinn danski
lét þá, er á þingi voru samþykkja
svohljóðandi traustsyfirlýsingu til
sin og ósk um að hann mætti þar
áfram stunda iðju sína].
„Uppá ofanskrifaða ósk og
begering er vort andsvar og opin-
ber vitnisburður, að kaupmaður-
inn Knud Storm hefur umgengist
frómlega og fnðsamlega við sér-
hvern mann og sína kauphöndlun
haldið í alla máta eftir Kgl. Mts.
taksta og forordningum og sér-
hvers manns nauðsynjum jafnan
góðviljuglega gegnt og tilbærilega
hjálpað og fullnægt með góðri
kaupmannsvöru i allan máta, svo
sem sérhver óskað hefur og sér-
hverjum oss er vitanlegt. Hvers
vegna vér skylduglega viljum þess-
ari hans tilbærilegu begeringu vel
og kristilega gegna og gjarnan
óska, að fyrr velnefndur kaupmað-
ur mætti vel og lengi með lukku
og blessan sömu höndlan fram-
halda og hljóta (bæði hér á landi
og annarsstaðar) guðs náð og
gleðileg velfelli til lífs og sálar
æ jafnan fyrir Jesum Christum."
Konan og sósíalisminn
„Fullkomið frelsi konunnar, al-
gert jafnrétti hennar og karlmanns-
ins er eitt af markmiðum menn-
ingarþróunar vorrar og enginn
máttur á jörðu vorri megnar að
hindra að því marki verði náð. En
þetta öðlumst vér aðeins með al-
gerri umbyltingu, sem afnemur
vald manns yfir manni — og þá
einnig vald auðmannsins yfir
verkamanninum. Þá fyrst nær
mannkynið æðsta þroska sínum.
Sú „gullöld", sem mennina hefur
dreymt um og þeir þráð árþúsund-
um saman, mun að lokum koma.
Stéttardrottnunin er þá á enda, en
þar með einnig drottnun karl-
mannsins yfir konunni."
„Framtíðin tilheyrir sósíalisman-
um og það þýðir í fyrsta lagi
verkamanninum og konunni."
August Bebel: „Konan og
sósialisminn". (50. útgáfa
bókarinnar kom út 1909. Þetta
þýtt úr útgáfunni 1922. Þá
höfðu komið út 180 þúsund
eintök).
Þekking verkamanna
„Keisarar Þýskalands og Rúss-
lands og aðrir stjórnendur stór-
veldanna væru ekki hræddir og
skylfu ekki eins og smágreinar í
stórviðri — fyrir fátækum iðnað-
armönnum, daglaunamönnum og
öðrum smælingjum — ef þetta
væru aðeins lausingjar, sem
hlaupið hefðu saman snöggvast
til hagnaðar sér í svipinn, en væru
siðspilltir menn og menntunarlitlir,
tilbúnir að tortryggja og svíkja
hvor annan á morgun.
Nei. — — En kynslóð, sem
vinnur á daginn og ver öllum
kvöldum sínum og litlu frístundum
til þess að mennta sig, og sínum
litlu fátæklingsaurum til menning-
ar sér og félagsnauðsynju, og
ennfremur elur börn sín upp i
því, að vera sjálfum sér og félag-
inu trú og réttlát við alla. — Slíka
menn óttast æðri stéttir og stjórn-
völd rikjanna. Því að þeir vinna
i lið með sér alla bestu og rétt-
látustu menn þjóðanna, og þeir
munu erfa rikið og völdin."
Þorsteinn Erlingsson (í erind-
inu „Verkamannasamtökin,"
fluttu 29. des. 1912 I Verka-
mannafélaginu Dagsbrún).
72