Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1945, Page 62

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1945, Page 62
henni tók Lúðvík Guðmundsson kaupmaður. Rak hann stöðina til ársins 1941. Þá var stofn- að h. f. „Garður“, er keypti útgerðarstöð þessa, og hefur rekið liana síðan. Fyrsti framkvæmda- stjóri hjá „Garði“ var Sverrir Júlíusson úr Keflavík, en hann er nú formaður Landssam- bands íslenzkra útvegsmanna. Síðan tók við framkvæmdastjórn Karl Jónsson frá Klöpp á Miðnesi. Hefur hann séð um rekstur fyrirtækis- Sveinn Jónsson. Ólafur Jónsson. ins síðustu árin 'og gerir það enn. H. f. Garður hefur ráðizt í allmiklar framkvæmdir, og er þó mest um vert smíð á stóru hraðfrystihúsi. Aðaleigendur Garðs h.f. eru þessir: óskar Halldórsson, útgerðarmaður, h.f. Lýsi, Olíuverzlun íslands og nokkrir útgerðarmenn í Garðinum. Stjórn félagsins skipa eftirtaldir menn: Héðinn Valdimarsson, forstj. Reykjavík, form. Tryggvi Ólafsson, forstj. Rvík. Óskar Halldórsson, útgerðann., Rvík. Guðlaugur Eiríksson, útgerðarm. Meiðastöð- um, Garði. Þórður Guðmundsson, útgerðarmaður, Gerð- um, Garði. Vertíðarstörf. Undanfarin ár hafa að jafnaði róið um 30 bát- ar frá Sandgerði. Bátar þessir hafa farið stækk- andi smám saman, og eru þeir nú flestir 20—30 smálestir, nokkrir þó stærri. Að jafnaði eru tólf menn á hverjum bát, sjö í landi en fimm á sjón- um. Fiskur allur er veiddur á línu. Eins og áður var að vikið, hefur línulengd farið mjög vax- andi, og er nú að staðaldri róið með 35—40 bjóð í róðri. Bjóðið er hálft olíufat, og eru í heilu bjóði 400—500 krókar. Dræsa sú, sem hver bát- ur leggur í sjó er geysimikil, eins og glögglega sézt á því, að bátarnir eru á annan klukkutíma að leggja línu sína alla. Er þó lagt með fullri ferð og ganga flestir bátarnir vel, 9—10 mílur á klst. Það hefur verið Íauslega reiknað út, að lína sú, sem allir Sandgerðisbátar leggja á degi hverjum, myndi ná frá Reykjanesi vestur fyrir allt land og norður á móts við Skaga. Síðustu árin hefur nær allur sá fiskur, sem á land hefur komið í Sandgerði, ýmist verið keyptur í hraðfrystihúsin eða seldur nýr í skip til Keflavíkur og Hafnarfjarðar. Landmennirnir frá bátum taka við íiskinum á bryggju, fleygja honum upp á bíla og aka með hann í íiskað- gerðahúsin. Þar hausa þeir fiskinn og slægja, nema þann hlutann, sem fer í hraðfrystihúsin. Þá er aðeins slægt en ekki hausað. Eftir þetta er fiskinum öðru sinni hent á bíla, og þá eru skipverjar lausir við hann. Meginstarf land- mannanna er í því fólgið, að beita hina löngu línu. Þá þurfa þeir einnig að taka á móti bát sínum þegar hann kemur að landi, sækja gömlu línuna um borð og koma aftur með nýbeitt bjóð- in, áður en lagt er af stað aftur í róður. Sjómennirnir róa á fastákveðnum „róðrar- tíma“. Má enginn fara mínútu fyrr en merki er gefið. Róðrartími þessi færist til, eftir því sem líður á vertíð og daginn lengir. f fyrstu er e. t. v. eklci róið fyrr en klukkan tvö að nóttu, síðan er tíminn færður til kl. eitt, en síðar hefjast róðr- ar á miðnætti, og þegar fram á vorið kemur er tekið að róa að kvöldinu. Skömmu áður en róðrartími kemur, safnast allur flotinn saman úti á sundinu, og raða bát- arnir sér þar upp, næstum því borð við borð. Skyndilega bregður fyrir glampa, blysi er brugð- ið á loft. Bátarnir taka allir viðbragð, auka hraðann, — eftir andartak sitja þeir í hvitfyss- andi tótt. Nú er haldið fram til miða. Áður fyrr, meðan róið var frá Sandgerði á árabátum, var þeim sið vandlega haldið, að róa til ákveðinna miða, þar sem allt var tengt við landsýn. Þegar er vélbátatíminn hófst, lagðist sá háttur niður að miða við land. Var þá ein- göngu siglt eftir áttavita og lagt eftir honum, en við það miðað hve lengi var „keyrt“ til hafs. Róa menn nú t. d. IV2 klst. í vestur að norðri, eða þrjá tíma í vestur, svo að einhver dæmi séu tekin. Þegar komið er á þær slóðir, þar sem skip- stjóra virðist helzt von um afla, er línan lögð, og tekur það allt að fimm stundarfjórðungum. Þessu næst er legið yfir línunni, oftast 3—4 stundir, eða þar til fyrsta skíma sézt af degi. Þá er ekki lengur til setu boðið. Nú þarf að fara að draga línuna, og mun ekki af veita, ef því skal vera lokið áður en myrkrið dettur á að kvöldi. Það marrar og syngur í tannhjólum línu- spilsins, sem togar dræsuna jafnt og þétt upp úr sjónum.Fiskur hangir á öngli öðru hvoru. Einn á fætur öðrum er goggaður inn fyrir borð- ið og hafnar í lestinni. Dagurinn líður. Smám VtKINGUR 332

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.