Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1987, Page 146
Finnbogi
Aðalsteinsson
formaður
Félags bryta
Félag bryta
Guðmundur
Sveinbjörnsson
formaöur
Verðanda
Verðandi
146 VÍKINGUR
Fra forystunni
I tilefni af 50 ára afmæli FFSI er það ánægju-
efni að íhuga það sem áunnist hefur varðandi
atvinnuskilyrði og kjarabætur til handa far-
mönnum. Allt frá stofnun sambandsins hefur
veriö unnið þrotlaust að þessum málum og vist
er að sambandið stefnir hærra og sinnir nú
einnig öðrum kröfum félagsmanna sinna i
samræmi við breytta tima og lagar starfsemi
sina að breytingum líðandi stundar og berst nú
einnig fyrir félagslegum og menningarlegum
þáttum i starfi aðildarfélaga sinna.
FFSI hefur á margvíslegan hátt reynt að
treysta samband sitt við hin ýmsu félög innan
vébanda sinna og verið i forsvari fyrir öll félög-
in, jafnt þau stærri sem þau minni, en aöildar-
félög munu vera 15 talsins. Öll eiga þessi félög
það sameiginlegt aö vera stéttarfélög fag-
lærðra manna í hinum ýmsu starfsgreinum. Á
siðustu árum hafa ný vandamál steðjað að öll-
um þessum félögum þó i mismunandi mæli sé,
og eru til komin vegna þeirrar stefnu að fækka
í áhöfnum skipa. Innan FFSÍ bitna þessar
breytingar haröast á tveim félögum en það eru
Félag bryta og Félag loftskeytamanna. Á und-
Frá forystunni
anförnum 10 árum hefur flestum starfandi
meðlimum Félags bryta i farmannastétt verið
sagt upp störfum. Félag bryta hefur þó reynt
að sporna við þessari þróun til verndunar
starfsheitinu bryti en með misjöfnum árangri.
Fyrir hönd Félags bryta hefur þó náðst viður-
kenning og dágóö festa innan Eimskipafélags
Islands, en víða annars staðar eru þessi mál
ekki i jafngóðu gengi.
Stærsta verkefni Félags bryta er þvi nú að
vinna á ný sinn sess og tryggja atvinnuöryggi
bryta innan islenska skipaflotans. Mun FFSI
að vanda styöja við bak aöildarfélag sinna og
forsvarsmenn þess vera málsvarar fyrir bar-
áttu Félags bryta gegn þessari óheillaþróun.
Skipstjóra og stýrimannafélag var stofnað i
Vestmannaeyjum i nóv. 1938. Það var svo ekki
fyrr en i janúar 1942 að ákveöiö var aö taka
upp nafn örlaganornarinnar Verðandi sem
nafn á félaginu. Tilgangurinn með stofnun fé-
lagsins var að reisa vita í Þrídröngum og unnu
félagsmenn talsvert við það. Alla tið frá stofn-
un félagsins hefur verið unniö að öryggismál-
um. Má nefna talstöðvar í alla báta og hlustun-
arvörslu á lofskeytastöðinni allan sólarhring-
inn. Gúmmibátar voru og skyldaðir i allan Eyja-
flotann áður en þeir voru viðurkenndir annars-
staðar.
Kjaramál hafa og ætíö verið i brennidepli. Má
nefna að á fyrstu árum þess var komið á
föstum róðrartima á linu og frium á sunnu-
dögum, sem varö til þess að einn útgeröar-
maður flutti frá Eyjum til að geta róið alla daga.
Meðal annarra mála eru tryggingar á sjómönn-
um, skoðun skipa og eftirlit með búnaöi þeirra,
menntun sjómanna, fiskfriðunarmál og. mörg
önnur mál sem i dag þykja alveg sjálfsögð.
Félagið hefur haft gott samstarf við FFSÍ frá
því það gerðist aðili þar að i júní 1943.1 seinni
tið hefur verið haft samflot meö öðrum félögum
innan FFSI i öllum málum er varða hagsmuni
skipstjórnarmanna og störf þeirra.
Ekki hafa þó allir félagar í S.S. Verðandi
alltaf veriö sáttir við gang mála innan FFSI og
er til fundarsamþykkt fyrir úrsögn úr þvi. En
Steingrimur Sigurðsson skipstjóri sem þá var
formaður sagði af sér formennsku i S.S. Verð-
andi fremur en aö fylgja þeirri samþykkt eftir.
Það er á hreinu að sama gerði ég ef þessi
staða kæmi uppi dag. Ég tel FFSÍ vera á réttri
braut og vil óska stjórn þess og starfsmönnum
og -konum alls hins besta á þessum tíma-
mótum.