Andvari

Volume

Andvari - 01.10.1963, Page 10

Andvari - 01.10.1963, Page 10
128 STEFÁN EINARSSON ANDVAHI æði og fékk skyrbjúg, þá var hægt að lækna hann með því að gefa honum hrátt kjöt. En um þessa fyrstu dvöl með Eskimóum skrifaði Vilhjálmur tvær greinar í Harper’s Magazine (1908—1909), er þýddar voru í Andvara 39. og 40. ár: „Vetrarseta með Eskimóum“ og „Heimilishættir Eskimóa". Et mat þraut í for- aðsveðrum á ferðalögum, bjargaði Vilhjálmur sér á sel eða hvalspiki eða lýsi, hlönduðu luglafjöðrum og hreindýrahjórum. V Önnur norðurför 1908—12 var farin með skólahróður Vilhjálms R. M. Anderson náttúrufræðingi til þess að kynnast ljóshærðu Eskimóunum á Viktoríu- ey. Vegna ótrúlegra hindrana, er landar hans lögðu á veg hans til þess að koma í veg fyrir, að hann dræpi sig, var það ekki fyrr en vorið 1910 að Vilhjálmur komst í kynni við Eskimóa við Bexleyhöfða, er aldrei höfðu séð hvíta menn og voru þess vegna algerlega óspilltir frumstæðir mcnn. Nokkrum dögum síðar hitti hann þá menn á Viktoríueyju, er hann hafði mest langað til að hitta, og segir svo um það í My Life with the Eskimos (1913, íslenzk þýðing Ársæls Árnasonar Meðal Eskimóa 1938): „Þegar ég sá fyrir mér þessa menn, sem virt- ust vera Evrópumenn, þrátt fyrir skinnklæðnað þeirra, vissi ég að fyrir mér lá annaðhvort lausn forns sögulegs harmleiks eða ný ráðgáta, ráðgátan urn það, hvers vegna þessir menn voru svo líkir Evrópumönnum, ef þeir voru ekki þaðan ættaðir.“ Og hann sannfærðist um það, að hér væru afkomendur hinna fornu Grænlendinga, er hann áður hélt að hefðu dáið út. Þegar Vilhjálmur og þeir félagar komu úr þessari norðurför haustið 1912, gerðist það í amerísku blöðun- um, sem Guttormur J. Guttormsson orti um: Eftir Vilhjálms utanför til Eski- móa / hvítu fólki fór að snjóa. Hann hafði naumast við að sinna beiðnum um tímaritsgreinar og fyrirlestra. Þessi leiðangur þeirra Vilhjálms og Andersons var kostaður af Ameríska náttúrufræðisafninu, og lét formaður safnsins, dr. EI. F. Osborn, svo um mælt i formála bókarinnar Meðal Eskimóa, að enginn leið- angur, seni safnið hefði staðið að, hefði borið svo góðan árangur. En sennilega hefur Anderson félaga hans þótt nóg um vinsældir Vilhjálms í blöðunum. VI En nú fór Vilhjálmur að húa sig undir síðustu og lengstu norðurför sína 1913—1918. Gekk Kanada í að kosta hana að öllu, enda átti að leggja öll ný- lendulönd undir brezku krúnuna. Annars var það aðaláform Vilhjálms að sýna, að íshafið væri ekki dautt haf heldur fullt af lífi og því óhætt að ferðast yfir það á sleðum sem land og skjóta dýr sér til matar. Anderson var enn í för og átti að kanna strendur Kanada. Þrjú skip höfðu þeir, en á einu þeirra Karluk,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.