Andvari - 01.10.1963, Blaðsíða 35
ANDVARI
ÁRNI BÖÐVARSSON SKÁLD
153
Hér mun rætt um Þorberg Þorsteins-
son, rímna- og sálmaskáld, sem andaðist
1722. Þá hefur Árni verið níu ára gam-
all. Hann telur Þorberg fyrstan í skálda-
tali í mansöng annarar rímu af Alexander
og Loðvík. Þess skal getið, að í skáldatali
í mansöng fimmtándu Bálantsrímu Guð-
mundar Bergþórssonar er lofsamlega
kveðið um Þorberg, cn þær rímur eru
ortar 1701.
Þeir frændur Árni Magnússon og
Böðvar Pálsson skrifuðust á, og í bréfum
sínum minnist Böðvar oft á Árna son
sinn. Er það fyrst, að með bréfi 4. októ-
ber 1727 sendir Böðvar Árna Magnússyni
barnalærdómsbók, sem Árni litli hefur
átt. Það sést af bréfum Böðvars, að hann
hefur sett Árna ungan til mennta bjá
vini sínum, sira Jóni Þórarinssyni prófasti
í I Ijarðarbolti. Þar befur Árni verið þrjá
vetur, 1726—29, og sennilegt er að hann
hafi einnig verið þar fjórða veturinn, en
síra Jón andaðist haustið 1730 og þá fór
Arni í Hólaskóla.
1 æsku hefur hugur Árna staðið til
meiri lærdómsframa en þá var unnt að
ná hér á landi. Faðir hans minnist oftar
en einu sinni á það í bréfum til Árna
Magnússonar, að Árni sinn vilji endilega
sigla, en segist ekki hafa ráð á að kosta
hann til þess. í september 1729 skrifar
Böðvar frænda sínum og spyr, hvort hann
mundi fáanlegur að styrkja sig, svo að
kostað geti son sinn til siglingar og há-
skólanáms. Ekki verður um það vitað,
hvort Árni Magnússon hafi ætlað sér að
sinna þeirri bón, enda ekki Jiess að vænta,
að til sé svar frá honum. Bréfi, sem skrifað
var héðan af landi til Danmerkur í sept-
embermánuði, mundu menn svara með
vorskipum árið eftir, eins og samgöngum
var Jiá háttað, en Árni Magnússon and-
aðist 7. janúar 1730.
Árni Böðvarsson fór í latínuskólann á
Hólum 1730 og varð stúdent Jiaðan 1732.
Sagt hefur verið, að hann væri á Helga-
felli eftir að útskrifaður var úr Hólaskóla,
enda var Jiá prestur Jiar og prófastur í
Snæfellsnesprófastsdæmi frændi hans og
vinur, síra Snorri, sonur Jóns Magnús-
sonar bróður Árna prófessors. Hafi Árni
Böðvarsson verið til náms á Llelgafelli
eftir stúdentspróf, sem raunar er ekki
líklegt, hlýtur það að hafa verið af Jieirri
ástæðu, að hann væri enn að hugsa um
siglingu og stundaði lærdóm hjá frænda
sínum til þess að ryðga ekki í því, sem
Jiá var heimtað til inntökuprófs í háskól-
ann.
Háskólaganga átti ekki fyrir Árna
Böðvarssyni að liggja. Ekki mun hann
hafa sótt um prestsembætti, þó að lær-
dóm befði til Jiess. Hann er bvergi skráð-
ur í skýrslum um stúdenta í Skálholts-
biskupsdæmi, en þær voru til Jiess gerðar,
að yfirmenn kirkjunnar gætu vitað um
Jiá, sem biðu eftir prestsembætti. Að vísu
má Jiess gæta, að Jiær skýrslur liófust
1743, en Árni hafði orðið bórsekur árinu
áður, og mundi Jiað i bili bægja honum
frá andlegri stétt. Sennilegast er, að hann
hafi aldrei til prestskapar hugsað. Ekki
er Jiess getið, að hann hafi stigið í pré-
dikunarstól, svo sem faðir hans gerði.
Báðir kusu Jieir að lifa í bóndastétt, þó
að lærðir væru, en Árni mun hafa verið
Jieirra veraldlegar sinnaður.
Gísli Konráðsson segir í Jiætti sínum
óprentuðum af Árna Böðvarssyni, að hann
væri maður vel á sig kominn sem margir
frændur hans, en rangeygur. I sama Jiætti
segir frá því, er þeir hittust í Ólafsvík
eða á Búðum Árni og Dala Starri. Hann
kvað er hann sá Árna:
Manninn prýðir málfærið
og margir blutir góðir,
en augun bæði á annari hlið
eins og á flyðru móðir.