Andvari

Årgang

Andvari - 01.10.1963, Side 41

Andvari - 01.10.1963, Side 41
ANDVARI ÁRNI BÖÐVARSSON SKÁLD 159 Skipafregn er fyrst eignuð Árna Böð- varssyni einum í bókinni „Nokkur garnan- kvæði ort af ýmsum skáldum á 18. öld“, sem út kom í Kaupmannahöfn 1832, en þar er kvæðið prentað í fjórða sinn. Út- gefandi þeirrar bókar var Þórarinn Sveins- son, bókbindari, en þó að hann væri merkur maður, hafa orð hans urn þctta efni öllu minna heimildargildi en þeirra átjándu aldar fræðimanna, scm áðan var getið. Enda sannfærðust fróðustu menn ekki um feðrun hans á Skipafregn. Jón Arnason, bókavörÖur, skrifaði við nafn Arna Böðvarssonar í fyrirsögn Skipa- fregnar í Gamankvæðum athugasemd þess efnis, að Jón Sigurðsson teldi hana kveðna af síra Gunnlaugi Snorrasyni og Arna Böðvarssyni. Gísli Konráðsson segir, að Árna Böðvarssyni sé „eignað að hafa kveðið Skipafregn nreð Gunnlaugi presti Snorrasyni á Helgafelli, þó sumir ætli prest einn höfund hennar.“ Eftir því sem á leið nítjándu öldina varð algengara að feðra Skipafregn eins og gert er í Gamankvæðum, og undir síð- ustu aldamót verður það alveg ofan á. Þetta eru áhrif Gamankvæöa, sem voru skemmtileg og vinsæl bók, enda mun síra Gunnlaugur hafa verið gleymdur almenningi, þegar leið að lokum síðustu aldar. Eftir hann var ekki annað en sálmar prentað undir hans nafni. Fæð- ingarsálmar hans voru síðast prentaðir 1860, og þó að þeir rnegi teljast með bctri átjándu aldar sálmum, munu þeir ekki hafa notið vinsælda aldamótamanna um 1900. í handritum eru til eftir hann ver- aldleg kvæði, sem eru betri en sálmar hans. Samkvæmt heimildum þeirn, sem nú eru raktar, hlýtur síra Gunnlaugur að teljast höfundur Skipafregnar. Þó ber þess að minnast, að þeir Árni Böðvarsson voru frændur og vinir. Síra Gunnlaugur var sonur Snorra prófasts Jónssonar, sem fyrr er getið. Vel rná vera, að Gunnlaugur hafi sýnt frænda sínum kvæðið, áður en það fór út til almennings, og sniðið það rneira eða minna eftir tillögum Árna. Mætti þá að nokkuru leyti til sanns vegar færa ummæli Eiríks víðförla, Rasks og Jóns Sigurðssonar, sem telja Skipafregn verk fleiri skálda en eins. Ymsum mundi þykja Árni Böðvarsson miklu sviptur, þegar hann getur ekki lengur talizt höfundur Skipafregnar. Al- mennra vinsælda naut hann þó löngu fyrr en farið var að eigna honum einum það kvæði. Hann var afkastamesta rímna- skáld átjándu aldar, og ckki er vitað um neitt eldra rímnaskáld honum afkasta- rneira nema Guðmund Bergþórsson, sem hlýtur að teljast til seytjándu aldar skálda, þó að hann lifði fram á fimmta ár þeirrar átjándu. Rímur Árna hafa verið mikils metnar af háurn og lágum, sem bezt sést af því, að prentaðar voru að honum lif- anda rímur hans af Þorsteini uxafæti og einnig Úlfarsrímur, sem Árni orti ná- lega hálfar, báðir þessir rímnaflokkar í veglegum útgáfum. Bæði rímur Árna Böðvarssonar og þau kvæði hans, þar sem efni er sótt í fornar sögur eða eddukvæði, sýna, að hann hef- ur verið miklu betur að sér í þjóðlegum fræðum vorum en almennt gerðist um rímnaskáld. Hann er vel að sér í Snorra- Eddu, en hana hefur hann þekkt í út- gáfu Resens 1665, sem hafði Laufás-Eddu að grundvelli. Hann bjargast mest við handrit, og eftir þeim kveður hann flestar rímur sínar, en hann hefur einnig þekkt margar, ef ekki flestar þeirra bóka um norræn og íslenzk fræði, sem til voru á prenti, þegar hann var uppi. 1 þeim fræð- um munu varla aðrir en þeir, sem höfðu lærdómsiðkanir að ævistarfi, hafa staðið honum á sporði. Síra Gunnar Pálsson segir eftir Eggerti Ólafssyni, að Árni hafi framar ætlan manna lagt stund á
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.