Andvari

Volume

Andvari - 01.10.1963, Page 50

Andvari - 01.10.1963, Page 50
168 I3JÖRN K. ÞÓRÓLFSSON ANDVARI Ekki verÖur sagt, að í kvæði þessu sé mikil andagift, en það er allmerk heim- ild um uppeldi kvenna og menntun þeirra til munns og handa á átjándu öld. Auðsjáanlega er átt við konur af heldra fólki og einkum lýst því, sem bezt gerð- ist. Þó segir Árni, að ekki sé alltaf mikl- um auði til að dreifa hjá fólki því, sem um ræðir í kvæðinu. Mjög loflega er kveðið um góðar húsmæður og stöðu þeirra, eins og hún var á þeim tímum, þegar hvert heimili varð að vera sjálfu sér nóg með öðrum hætti en nú á dög- um. Árni kvaðst hafa ort ,,þetta ypparlega íslands kvenna lof við einhver mátuleg lelegheit". I kvæðinu segist hann vera efra aldurs. Það er til í eiginhandarriti Árna, sem hann sendi Jóni Jakobssyni, sýslumanni í Eyjafjarðarsýslu, árið 1770. Hér að framan er minnzt á Sigurð Jóns- son, sem hjálpaði Árna, þegar hann rak í vörðurnar að kveða Haralds rímur Hringsbana. Eftir Sigurð eru vísur í kveri Árna í Lbs. 2409, 8vo, svo auðsætt er, að kynni þeirra hafa byrjað fyrir 1746. Eftir Sigurð eru ýmis kvæði og vísur í handritum Landsbókasafns. Idann er í sumum handritum nefndur skáldi. Hans er fyrst getið í Dalasýslu. Á Svínahóli þar í sýslu dagsetur hann 26. nóvemher 1753 ljóðabréf til Benedikts Hanesson- ar, sem síðar varð prestur til Miðdila- þinga, og getið er Sigurðar í þinghók Dalasýslu 1758. Síðar fluttist hann suður í Borgarfjörð, hjó á Kollslæk og var enn á lífi 1774. Það var tízka á átjándu og nítjándu öld, að skáldmæltir menn skiptust á sendi- bréfum í Ijóðum. Svo gerðu þeir Árni og Sigurður, og einnig ortu þeir hvor til annars lofkvæði, sem þcir nefndu skáld- vinardrápur, sína drápu hvor, Þær cru undir runhendum hætti og skiptast í stefjamál að miklu leyti eftir fornurn regl- um. Fyrirmyndin mun eiga að vera Höfuðlausn Egils. 1 skáldvinardrápum þessum er rnikið torf og sumar kenningar lítt eða ekki skiljanlegar, en drápa Árna veitir þá vitneskju um Sigurð, að hann hefur verið fæddur í Eyjafirði. Drápa Sigurðar mun vera ort einhverntíma á árunum 1746—49, og sennilega er drápa Árna álíka gömul. Ljóðabréf þeirra Árna og Sigurðar cru undir rímnaháttum. Geymzt hafa fjögur slík bréf frá Árna til Sigurðar og eitt frá honum til Árna, en bréf Sigurðar munu hafa verið fleiri. Ekkert þessara lióða- hréfa er tímasett, en eitt af hréfum Árna er augljóslega skrifað cftir að hann var kominn að Okrum og kvæntur Ingveldi. Vinátta hefur verið með Árna Böðvnrs- syni og Sveini lögmanni Sölvasvni. Þcir ortu hvor um annan lofkvæði í langloku- formi, og eru þau jafnlöng, 23 vísuorð hvor langloka. Kvæði Árna er ort 1754 eða síðar, og ekki getur kvæði Sveins verið ort fyrr cn 1753. Þau eru hæði til í handriti Árna. Þess er getið hér að framan, að óspart lofar Árni Jón sýslumann Árnason í man- söngum rimna, sem fvrir hann cru ortar. Þó er lofdýrðin um sýslumann enn meiri í hrynhendu kvæði, sem Árni orti til hans og nefndi Haustlöng eftir frægu kvæði Þjóðólfs úr Hvini, skálds Haralds hár- fagra. Auðvitað velur Árni þetta nafn kvæði sínu til skrauts og sýslumanni til vegsemdar, en ekki sést, að kvæði Þjóð- ólfs sé stælt. En svo mikið er lofið um sýslumann og svo dýrlegar kenningar eru um hann hafðar, að ekki mun lengra pengið í neinu konungskvæði fornu. Hér skal upp tekinn fvrri helmingur fvrsta erindis:
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.