Andvari

Volume

Andvari - 01.10.1963, Page 52

Andvari - 01.10.1963, Page 52
170 BJÖRN K. ÞÓRÓLFSSON ANDV.VM Þriðji og síðasti kafli kvæðisins er með lagboða „Ogmundur er í fyrtum“. Þar segir frá því, er Fortuna gefur skáldinu leyfi að fara aftur á vit jarðarbúa eftir að það hefur beyrt beillaóskir æðri krafta ungu hjónum til banda. Merkúríus flytur skáldið til jarðar. Það vaknar af draumi sínum og leiðslu, er þá statt mitt á meðal brúðkaupsgesta og lýkur kvæðinu með heillaóskum til brúðhjónanna. Fyrsta ljóðlína þessa kvæðis, „Vel sá drekkur, vel mun sofa“, er þýðing á latn- eskum talshætti, sem Holberg notar í leikritinu Erasmus Montanus. Hitt brúðkaupskvæðið, sem til er eftir Árna Böðvarsson, er ort af því tilefni, að Jón sýslumaður Árnason hélt heima hjá sér á Ingjaldshóli brúðkaup tvennra hjóna. Fyrirsögn: „Brullaups vísur Árna Böðvarssonar á Ingjaldshóli kveðnar 1760“. Það er sameigið þessum vísum og kvæðinu, sem lýst er hér á undan, að brúðkaupið vekur eftirtekt utan mann- anna heims, en nú eru það ekki uppheima nornir og gyðjur, sem hrífast af veizlu- dýrðinni, heldur Bárður Snæfellsás og skcssur úr sögu hans. Hetta tröllkona vckur Bárð og segir: Heill veri þú Bárður, I letta kom úr Enni. Hún segir, að nú dynji fold af gleði, en Bárður spyr hvað títt sé á Hóli. Hún svarar að þar sé mikil hátíð, tvenn brúð- hjón séu snman vígð. Bárður spyr um nöfn brúðgumanna, en hún segir, að þeir heili Hákon og Þorvarður. Síðan sendir skessnn Hít aldið skáld frá Ökrum til að flytja brúðhjónunum kvæði. Ekki eru greind nöfn brúðanna, en lofinu um Jón sýslumann cru varla takmörk sett. Hákon og Þorvarður hafa sennilega verið bændur einhvers staðar á Snæfells- nesi. Næst á eftir rímum sínum er Árni Böðvarsson frægastur fyrir níðkvæði. Meðal samtíðarmanna hans hefur leikið orð á því, að hann væri munnhvatur að yrkja níð. Gísli Konráðsson segir, að hann væri all frekyrður í vísum sínum og stundum í gamni. Segir Gísli sögu af því, er nágranni Árna, Helgi að nafni, braut fyrir honum torfljá. Árni var hag- ur á járn og fór í smiðju annaðhvort til að sjóða brotin saman eða smíða nýjan torfljá, og heyrðu menn hann þá mæla fyrir munni sér: Nauða bágur bjakarinn, bónda hrörið Helgi minn, meinslysnasta mannkindin, mölvaði fyrir mér torfljáinn. Segir Gísli, að þeim, sem til heyrðu, hafi þótt Árni mjög hlífast við Helga, enda væru þeir kunningjar. Má af þessu marka, að menn hafi ckki verið vanir mikilli hhfð hjá Árna, cf honum rann í skap. Tvö kvæði eftir Árna Böðvarsson, sem kölluð eru brúðkaupssálmar, eru háð eitt og níð um brúðhjón og gesti þeirra. Annað þessara kvæða mun vera ort meðan hann átti heima á Snæfellsnesi. Svo virð- ist, sem hjónin séu gefin saman af próf- asti á Helgafelli. Brúðguminn er nefndur Hofstaða Gvendur, og gæti það verið Guðmundur sá Guðmundsson, sem skráð- ur er meðal bænda á Hofstöðum í Helga- fellssveit í bændatali frá 1736. Kvæði þetta er í handritum ýmist nefnt sálmur kveðinn af Árná Böðvarssyni eða Brúðar- gildið. Fyrsta ljóðlína: „Biður mig þjóð“. Annað vers þessa sálms hljóðar svo: Ef köld kæluhríð kemur, þá vona menn eftir á blíð að veðráttan snúist sem vanalegt er, varð það nú eins fyrir manninum hér, Hofstaða Gvendi, sem hátt nafnið bar og hrygglinur var, og hrygglinur var.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.