Andvari

Volume

Andvari - 01.10.1963, Page 58

Andvari - 01.10.1963, Page 58
176 ÍSJÖRN K. ÞÓRÓLPSSON ANDVAIU ar jafnvel í vísum, sem hann kastar fram út af hversdagslegum viðburðum. Góð dæmi um þetta eru tvær lausavísur í kveri hans í Lbs. 2409, 8vo. Stúlka var send að sækja eld á bæ, sem hét Háls. Þegar hún fór, kvað Arni til hennar: Kveiktu ástar glaða glóð gusti þægum ímu, elfa röðuls eyjan góð, um blájaxla grímu. Þegar stúlkan kom með eldinn, kvað hann: Hauðurs skriða livílu spöng hægðir litlar þáði, urðar neyð í andar göng árla sækja náði. I fyrri vísunni skýrir Árni neðan máls kenninguna blájaxla grímu: vetur. Blá- jaxl er bjarnarheiti, en gríma eða nótt bjarnarins er vetur. Að öðru lcyti mun sú vísa auðskilin, en hin er torskildari. Hauðurs skriði er ormur, hvíla hans gull, en gulls spöng er kvenkenning. Síðara helming vísunnar skýrir Árni sjálfur. í kenningunni andar göng er fólgið bæjar- nafnið Háls. Urðar neyð er eldur, en hér beitir Árni þeim orðaleik að láta sögn, þ. e. orð, stíga urn palla: ,,Urð kalla eg greni, greni kalla eg við, viðar neyð er eldur“. Sams konar orðaleik má oft finna í rímum hans, einkum Brávallarímum. Dýrir bragarhættir þóttu prýða skáld- skap flestu öðru fremur. Rímur Árna sýna ljóslega, að hann æfði mjög þá íþrótt að kveða dýrt. Einnig eru lausavísur hans oft dýrt kveðnar. Llm veðuráttu 1742 orti hann þessa vísu og skrifaði hana í kver sitt í Lbs. 2409, 8vo: Hastur vestan hristi röstu þústur, Hræsvelgs blærinn nærist ær sem væri, norðan fjarða nærðu urðbrjóts ferðir, nálægt sjá ís bláan gljá á fáum, Austan gustur æsti frosta köstin, ýfir drífu kíf, sem líf af hrífur, bannar önnum, en á sunnan finnum egnir megnis regnið, þegnar fregna. I sama kver hefur Árni skrifað þessa refhvarfavísu eftir sig: Glaðlynd, hrygg, mýkir, meiðir, mannþýð, stygg, leylir, bannar, grætur, ldær, gjörir, neitar, gefur, sínk, trúir, efar, sjúkleg, hraust, bætir, brákar, lilómlcg, föl, þagmælsk rómar, vakir, svaf, lauk upp, lokar, lítil, stór, seinkar, flýtir. Klófuglakvæði Árna er með hans hendi í Lbs. 221, 4to. Það er gamankvæði um sjómennsku klófugla. Hrafninn er talinn fyrstur. „Hans formennsku hvergi brá“. Sama lof fá aðrir klófuglar, hrossagaukur, spói, keldusvín, sem ber huliðshjálm, fálki og smirill. Árni kveðst yrkja þetta mcinlausa gaman handa börnum. Hann hefur ort fleira um fugla. Honum er eignað kvæði um svölu, Svölukvæði. Þýtt hefur hann og lagað eftir íslenzkum staðháttum kvæði um næturgalann. Einn er sá viðburður á ævi Árna, sem hefur orðið honum kvæðisefni. Það er björgun hans og þeirra, sem með honum voru á skipi, úr sjávarháska í miklu of- viðri. Samanburður kvæðisins við Gríms- staðaannál sýnir, að þetta hefur verið 24. apríl 1752. Skáldið nefnir kvæði þetta Lífgjöf. Það er undir hrynhendum hætti og byrjar og endar með þakkargjörð til guðs. Upphaf: Árin, dagar og allt, hvað hrærist, æðstan prísi jöfur hæða. Árni Böðvarsson er þjóðinni kunnastur fyrir veraldlegan skáldskap. Þó hefur hann látið eftir sig andlegan skáldskap, mikla Kristsdrápu og sálma, og er sú
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.