Andvari

Volume

Andvari - 01.10.1963, Page 80

Andvari - 01.10.1963, Page 80
198 ELIAS WESSÉN ANDVARI Hávi sjálfur, sem mælir. Aðeins tvær skýringar virðast tiltækar: annaðhvort tvö tilbrigði við eitt efni lijá einum og sama höfundi, eða eftirlíking, ef þeir eru tveir. En hvor þeirra væri þá upphafleg- ur? 4. Samhengið í kvæði eins og Hávamál- um I (1—77) er vitaskuld mjög losara- legt. Ekki var að vænta ncins röklegs hugsunarferils. Oðru máli gegndi um sagnakvæðin, þar sem tímaröðin sagði fyrir verkum, eða til dæmis Vafþrúðnis- mál, þar sem töluröðin (Seg þú þat it eina . . . , Seg þú þat annat) var skil- merkilegur leiðarvisir. Af þessum sök- um hefur verið erfitt að muna kvæðið í réttri vísnaröð. Gera verður ráð fyrir því að sú munnlega geymd, sem ritarinn byggði á, hafi verið óviss og sundurleit. Það er því raunhlítt að gera bæði ráð fyrir eyðum vegna gleymsku í hinni munnlegu geymd, brenglun í vísnaröð- inni og síðari innskotum erinda cða er- indahópa úr öðrum áttum. Enn er það, að sá sem skipaði niður Hávamálasafninu kann á sínum tíma að hafa samið innskot og flutt til erindi. Það ætti sennilega við um crindin 13—14 (eða kannski 12—14). Þau eru sann- kallað Óðinsdæmi, skotið inn til að lýsa óhollustu drykkjuskaparins (í sambandi við 11. erindi). Sama mun gilda um er- indi 73—75, sem rjúfa harkalega hugs- unarferil erinda 68—77, um æðstu verð- mæti lífsins. I staðinn eru crindin 78 og 79 af nákvæmlega sama tagi og kvæðið ella; þau mundu af einhverri ástæðu hafa fallið brott úr réttu samhengi sínu og verið sett á cftir lokavísunum 76 og 77. Ekkcrt vinnst við það eitt að láta vísna- samstæðurnar 76—77 og 78—79 skipta um sæti. Erindi 78 um fallvelti og fánýti auðsins kæmi vel saman við crindi 40 eða 48; erindi 79, um óhæfi hins ósnotra að þola framgang, færi hinsvegar vel með erindunum 23—27. En vér getum ekki vitað, hvort þessu hefur verið svo háttað. Hið eiginlcga „orðskviðakvæði" sam- anstendur þannig, eftir grófgerða síun, af crindunutn 1—11 (12), 15—72, 76—79. Til að gera kvæðið aðgengilegra, má vitaskuld leyfa sér tilfærslu erinda til að fá betra samhengi. En það er sjaldan unnt að fullvissa sig um, að maður kom- ist með því móti nær upphaflegum texta. I linsvegar tekur Erik Noreen of djúpt í árinni, þegar liann kallar slíkar tilraunir „óheppilegar og ólevfilegar". Hvert cinstakt crindi myndar löngum afmarkaða einingu, svo sem þeir Heusler og Erik Noreen hafa skýrast bent á. Það er oft og tíðurn, segir Noreen, „alveg sjálfstætt, fullgert listaverk, smáljóð út af fyrir sig“. Þótt þetta sé rétt, og enn- fremur einkenni á stíl Hávamála, er hægt að greina í kvæðinu marga samstæða er- indahópa, þar sem röðin hlýtur að vcra upprunaleg: erindi 2—5, 8—9, 10—11, 23—27, 36—37, 41—46, (53) 54—56, 58—59, 66—67, 68—77. í kvæðinu verða greind nokkur skýr hugsunarferli, en einnig skörp hugsunarskil. Þvílíkt samhengi er tæplcga vcrk safnandans, niðurröðun erinda og erindahópa sem upphaflega hafi verið aðgreind. Öllu heldur er þetta leif upprunalegs kerfis, sem fyrir gleymsku og óvissar tengingar hefur smám saman brenglazt og safnand- inn eða samsteypumaðurinn ekki getað fært í samt lag. Margt hefur verið rætt um aldur og umhverfi kvæðisins, og get ég verið stutt- orður um það efni. Það bcr engin merki kristins dóms, hvorki jákvæð né neikvæð (sbr. Völuspá). Eigi heldur heiðins dóms; enga guði eða goðmögn ber á górna (að undanskildum erindunum 13—14, vita- skuld), engar tilbendingar um töfrabrögð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.