Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.1986, Blaðsíða 112

Andvari - 01.01.1986, Blaðsíða 112
110 GUNNAR STEFÁNSSON ANDVARI því að margar hneigðir séu uppi innan beggja stefna. En engu að síður held ég að þessi skilgreining geti gagnast okkur þegar við reynum að meta stöðu Indriða G. Þorsteinssonar í íslenskri sagnagerð. Skilgreiningin á að sjálfsögðu jafnt við skáldsagnaritun sem smásagna. Áður var að því vikið að Indriði er raunsæishöfundur, en sögur hans greini sig frá næstu höfundarkynslóð á undan í frásagnaraðferð og við- horfum. Hins vegar er Ijóst að sögur Indriða eru ólíkar þeim módernisma sem tók að láta á sér bæra um sömu mundir og hann fór að birta sögur. Sjá- um við það gleggst ef við berum saman við jafnaldra hans, Thor Vilhjálms- son, sem gaf út fyrstu bók sína ári fyrr en Indriði og nefndi Maðurinn er alltaf einn. Skilgreining módernismans hjá Matthíasi Viðari fellur vel að verkum Thors. Indriði er aftur á móti raunsæishöfundur að því leyti að hann sér einstaklinginn í skýru samhengi við samfélagið, raunar má segja að einstaklingur Indriða sé leiksoppur samfélagsafla sem hann ræður eng- an veginn við. En hver er þá sérstaða höfundarins? Hún er fólgin í stílnum og samsömun sögumiðs og söguforms. Stíll Ind- riða er hlutlægur, sjónrænn, nákvæmur í myndgerð. Sögur hans hverfast um sjálfar sig. Þær eru ekki útleggingar á einu eða neinu, ekki heldur texti til útleggingar. Og þetta er raunar veruleg nýlunda miðað við eldri höf- unda vora. Siðferðismatið, erindi höfundar við lesandann, eins og stundum er sagt, er fólgið í hinum sjónræna, áþreifanlega efniviði verksins, - form og inntak órofa heild. í sjálfu sögumannsviðhorfi Indriða er fólgið hið per- sónulega framlag hans til sagnagerðarinnar. í rauninni stendur hann á milli hefðbundinnar raunsæisstefnu og módernískrar sagnaritunar. í bókmenntafræði er raunsæisstefnu lýst svo að samkvæmt henni skuli skáldin leitast við að gefa rauntrúa mynd af samfélagi manna, og jafnframt er einatt fólgin í verkum raunsæishöfunda pólitísk eða siðferðileg áminn- ing. í smásögum er altítt að lýst sé utangarðsmanni, einstaklingi sem sam- félagið útskúfar og tortímir. Stundum er talað um félagslegt raunsæi annars vegar og borgaralegt hins vegar. Fer það þá eftir því hvort ádeila á öfugsnúið og grimmúðugt samfélag er mönnum hugleiknari en almenn heimspekileg eða siðferðileg íhugunarefni. Þennan streng getum við rakið í íslenskri sagnagerð aftur til Verðandimanna. Naprar þjóðfélagsádeilur Gests Pálssonar urðu fyrirmynd slíkra sagna, þar sem Einar H. Kvaran varð höfuðskáld borgaralegs raunsæis á sinni tíð. Seinna sjáum við þessar kvíslar í verkum tveggja þeirra höfunda sem mesta stund lögðu á smá- sagnagerð, þeirra Halldórs Stefánssonar og Þóris Bergssonar. Sá fyrr- nefndi samdi harðskeyttar ádeilusögur, hinn síðartaldi var sporgöngumað- ur Einars H. Kvarans sem oddviti borgaralegrar raunsæisstefnu í smá- sagnagerð. Þessa strauma sjáum við líka í skáldsögunum, nema hvað Hall- dór Laxness spannar hvorttveggja á sínum ferli. Næstir honum fóru Stefán
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.