Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1948, Side 34

Andvari - 01.01.1948, Side 34
30 Þorkell Jóhannesson andvari í því máli voru ýmsar blikur á lofti og þurfti alls við, áður lauk. Honum var það einkum að þakka, að Kanadastjórn stofn- aði í tilefni af Alþingishátíðinni Kanadasjóðinn til styrktar íslenzkum námsmönnum, er stunda ætla framhaklsnám i skól- um eða vísindastofnunum í Kanada. Frá stofnun þessa sjóðs var að fullu gengið 1933 og ákveðið, að hann skyldi vera 25 þús. dollara, og var það alhnikið fé á þeim krepputima, sem þá gekk yfir. Þessi rausnargjöf var í raun og veru stórkostleg viðurkenning á þjóðhollu og þjóðnýtu starfi íslendinga í Kanada, jafnframt því sem ættjörð þeirra var heiðruð. Hér var því marki náð, sem sira Rögnvald Pétursson og ýmsa aðra forvígismenn íslenzkra þjóðræknissamtaka vestra hafði um dreymt, að þeir mætti, þrátt fyrir fámenni sitt, verða metnir engu miður miklu öflugri og mannfleiri þjóðum lands- ins og halda þó fast við þjóðerni sitt. Hér var að vísu heiðrað framtak íslendinga vestra, sem brýnt var fyrir landnemunum á fyrsta ísléndingadeginum fyrir 50 árum siðan. En því aðeins hafði þeim heiður hlotnazt, að þeir höfðu gætt vel samheldn- innar og að varðveita þjóðerni sitt! Þetta var öllum ljóst, og ég ætla, að þjóðræknissamtök íslendinga í Vesturheimi hafi enga öflugri uppörvun hlotið en þessa, og munu þau líka lengi að henni búa. Áhrifum og atbeina síra Rögnvalds var það líka að þakka öðru fremur, að þjóðþing Bandaríkjanna heiðraði ísland á þann hátt sem það gerði 1930, er það lét reisa hér stytlu Leifs hins heppna. Sii vinargjöf hinnar miklu þjóðar Vínlands hins góða mun lengi verða óhrotgjarn minnisvarði um forn og ný aírek íslenzkra landnámsmanna. VIII. Rögnvaldur Pétursson unni mjög hvers konar vísindum, maður víðlesinn og ágætlega að sér, einkum um söguleg efni. í viðræðu var hann allra manna skemmtilegastur. Hann var stálminnugur, og lágu honum jafnt á tungu tilvitnaðir í ný rit og forn l'ræði. Hann var flestum mönnum fróðari um íslend- inga vestra, ættir þeirra og uppruna, hagi þeirra og örlög. Á ferðum sínuin um bvggðir íslendinga vestra og svo i Winnipeg,

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.