Andvari - 01.01.1948, Blaðsíða 40
ANDVARI
Sigurður Breiðfjörð.
150 ára minning.
Eftir Jóh. Gunnar Ólafsson.
I.
Sigurður Eiríksson Breiðfjörð var fæddur 4. marz 1798
í Rifgirðingum og skírður sama dag. Eyjar þessar eru í mynni
Hvammsfjarðar og í Breiðabólstaðarsókn á Skógarströnd.
Foreldrar lians voru Eiríkur Sigurðsson bóndi í Rifgirðingum
og kona hans, Ingibjörg Bjarnadóttir. Þau giftust 1791. Ei-
ríkur var talinn vera vel viti borinn og hagmæltur. Sigurður,
faðir Eiríks, var Eiríksson, Magnússonar, Ivarssonar, og höfðu
þeir búið hver fram af öðrum í Rifgirðingum. Ingibjörg, móðir
Sigurðar, var dóttir Bjarna Bogasonar bónda í Frakkanesi,
Brimilsvöllum og Mávahlíð, Benediktssonar bónda í Hrapps-
ey (d. 1803), Jónssonar fálkafangara í Brokey. Kona Boga
Benediktssonar í Hrappsey var Þrúður, dóttir Bjarna Péturs-
sonar sýslumanns ríka á Skarði, Bjarnasonar, Péturssonar
sýslumanns á Staðarhóli, Pálssonar á Reykhólum, Jónssonar
(Staðarhóls-Páls). Er þetta göfugt kyn og stórbrotið. Skáld-
gáfa var einnig í ættinni.
Kona Bjarna Bogasonar var Jóhanna, dóttir Vigfúsar stúd-
ents og spítalahaldara á Hallbjarnareyri, Helgasonar (d. 1777).
Helgasonar á Laugarbrekku, Vigfússonar á Lundum og Laug-
arbrekku (d. 1704), Helgasonar Hellnaprests (d. 1674). Voru
þeir feðgar hraustmenni, en litlir skapstillingarmenn, einkurn
við vín. Margir voru þeir hagmæltir. Vigfús spítalahaldari
kvað Hrakningsríinu Sigurðar Steinþórssonar um 1750. Þessa
rímþraut kvað hann undir hættinum gagravillu stíma:
Fróði bróðir, fjáður dáð,
friður yður greiði leið,
góða Lóðins gljáði láð
griða smiður eyði neyð.