Draupnir - 01.05.1903, Page 24
56
DRAUPNIR.
fjarlægð, er óskiljanlegt, hvernig hann gat kast-
að svo sandi í augun á ráðaneytinu í Noregi,
svo það mat hann góðan og gildan biskup hér á
Hólum í 3 ár. Jú",svaraði hann sér sjálfum eftir
litla umhugsun, „erkibiskupinn sagði mér það, þó
hann eins og ég, gæti ekki til fullnustu skilið,
hvernig í því lá. Matthías sór fyrir rétti, að
Gottskálk biskup væri látinn, og hefur svo ein-
hvern veginn hagað því svo til, að Gottskálk
hefir ekkert látið sín getið í þessi ár, og Matt-
hías hefir skrifað embættisbréfin til erkibiskups
og kórsbræðranna í Niðarósi undir sínu nafni, því
Gottskálk frændi trúði honum vel. — Jú, hann
er sloppinn undan refsidómi vorrar jarðnesku
heilögu kirkju, en fær hann því harðari í hinni
himnesku, — hann kemst ekki svo fljótt úr hreins-
unareldinum væntir mig —
Rétt í þessu bili var barið að dyrum og
samstundis kom inn þrekinn og mikilúðlegur
maður í ferðafötum og laut djúpt fyrir biskupi.
„Velkominn frændi!" sagði biskup og stóð upp
á móti komumanni. „Hvað er nú að frétta frá
Noregi, Gottskálk frændi?" „Mörg eru tíðind-
in þaðan, en fá stór, og áður en eg segi yður
þau, ætla ég að geta þess, að ég hefi lokið öll-
um kaupsamningum yðar vel, selt vöruna við
hæsta verði og náð góðum kaupum á við og
öðru. Skipið liggur nú við akkeri í Kolbeins-
árósi". „Það eru góð tíðindi frændi, en mér