Draupnir - 01.05.1903, Síða 47
DRAUPNIR.
79
og valinkunnan mann, sem nokkuð hefur numið í
helgum fræðum, og getur í viðlögum gegnt
starfi hans, þegar hann er eins og núna, lamað-
ur á heilsunni; og hann þykist ekki geta haft
til þess neinn af bræðrunum, þykir þeir táp-
litlir í sendiferðir. Eg hef hér nú 3 kirkjupresta
og enginn þeirra er hæfur til þess. — Sumir
líta nú um stundir mest á eigin hagsmuni og
gegna embættinu fyrir siðasakir, — nei, hags-
munasakir, og vér höfum ekki vald yfir andan-
um, en yfir ytra forminu. Hin heilaga frú
María blási mér í brjóst að velja hinn rétta
mann, sem helgi sig með lífi og sálu hinni heil-
ögu kirkju, því með tíð og tíma verða þeir ungu
forkólfar trúarinnar, kirkjunnar og mannfélags-
ins. En á þessuni tímum er mikil siðspilling;
prestarnir taka sér bústýrur og eiga börn, og
fótumtroða svo algerlega „Cölibatlögin", sem
hafa verið gildandi í heiagri kirkju síðan
Gregor 7. fékk þau staðfest árið 1074, og
mig skyldi ekki undra, þótt biskuparnir sjálfir
taki sér sama rétt þegar minnst von um varir".
Biskup var svo niðursokkinn í þessar hug-
leiðingar, að hann tók ekki eftir mannþsemkom
ríðandi yfir þvert túnið, hafði vikið af veginum
hjá Skólavörðunni, og í stað þess að ríða niður
traðirnar og svo inn í staðinn, eins og siður var
til, reið hann yfir mýrardragið hjá Fornastöðli,
þúfnapettið illa fyrir austan kirkjugarðinn, og