Draupnir - 01.05.1903, Page 84
116 DRAUPNIR.
að hann boðaði þá alla á prestafund að Víði-
völlum í Skagafirði, því hann ætlaði af landi
burt um lengri eða styttri tíma.
Grímur bóndi komst með heilu og höldnu
heim til sín um vorið, þreyttur og armæddur,
var þá hin svonefnda síðari plága mjög svo far-
in að breiðast út um Suðurland, og strádrap
alla, þar sem hún kom. Samt lifði hann pláguna af
og þau húsfreyja bæði, og urðu þau upp frá
því hinir mestu gestgjafar.
Yndi æskudraumanna og alvara
veruleikans.
„Seinna linast heitin hörð
hugurinn engu kvíðir,
lætur dúka linna jörð
leiðast til um síðir".
(Gömul vísa).
Það er aftur komið sumar og ýmislegt hef-
ir breytzt. sumt til batnaðar og sumt til hins
lakara, eftir því sem menn kalla. Ari Sigurðs-
son og Elín Magnúsdóttir eru nú flutt búferlum
að Laugalandi, og vegnaði þar betur en þó eng-
anveginn vel, meðfram sökum þess, að Elín var
engin búsýslukona, en hélt sama hætti með stór-
mennsku sína og makindi, og tjáði lítið, þótt
Ari fynndi að því við hana.
Jón sonur þeirra var nú orðinn vikadrengur
á klaustrinu, en nam í frístundum sínum ýms
þarfleg fræði, lestur, skrift og ýmislegt í guð-