Draupnir - 01.05.1903, Page 109
DRAUPNIR. i4I
frá henni tekið. Og hún breytti umtalsefninu
og sagði:
„Er Sigurður bóndi þinn heimaf" „Nei,
hann er nærri því aldrei heima um þessar mund-
ir. Hann er nýkominn frá Hólum, og í gær-
kvöldi fór hann lestaferð fyrir einhvern út í
Eyjafjörð. Það er rétt eins og allir þurfi að
biðja hann einhverrar bænar, áður en hann fer
héðan".
Nú þögðu þær báðar, þar til Málmfríður
sagði: „Fór Jónsi ekki ríðandi svona langan
vegf“ „Ríðandif" tók Elín upp eftir henni.
„Við eigum ekkert hross til í eigu okkar“. Málm-
fríður stóð þá upp og kvaddi. Elín fylgdi henni
til dyra. „Nú er Elín ekki rík“, hugsaði Málm-
fríður, „þegar hún gerði mér ekkert til góða —
og veslings Jón — að verða að ganga allan
þenna veg. — Eg skal vita, hvort ég get ekk-
ert hjálpað upp á hann, garminn. — Jón gamli
hefir æfinlega léð mér Móaling sinn til að ríða,
og nú skal ég biðja hann í dag, að ríða með
mér inn í Möðrufellshraun og sýna mér hrísluna
fögru, og þegar við Sigurður son hans förum
héðan með vorinu, þá verður hann við bæninni,
og Móaling skulum við hafa með okkur í taumi
svo við getum skift um hesta. — Eg strengdi
þess einu sinni heit, að ég skyldi gleðja Jón
litla, ef ég gæti, og hver veit nema nú færist