Draupnir - 01.05.1903, Page 137
DRAUPNIR. 169
erum engin fífl. Við trúum ekki öllu, sem okk-
ur er sagt".
„Fyrst þú ert svona vantrúaður á skáld-
skapargáfu hans“, sagði Málmfríður, „þá er þér
óhætt að leggja eitthvað undir“,
„Jæja látum við það vera svo. Þú, Jón
Arason, mátt eiga folann að kvæðalaunum, ef
þú getur kveðið um hann laglega vísu á meðan
þú gengur einu sinni í kringum hann, og þú
verður að nefna nafn hans í öðruhverju vísuorði,
svo ég verði ekki blekktur".
„Teymdu þá hina hestana frá honum á með-
an, nafni minn, svo þeir séu ekki á veginum á
meðan ég feta í kringum hann“. Jón bóndi
gerði eins og honum var sagt. Jón Arason hófst
þá máls og kvað við raust:
„Mín er lyst í ferðum fyrst
að fara í kringum Móaling,
finna þann hinn fróma rnann,
er fær mér slingan Móaling.
Att hef ég í aurum fátt
annað þing sem Móaling,
þvi er mín bón, að bóndinn Jón
bringi mér sinn Móaling".
Hann kvað vísuna á meðan hann gekk í kring-
um hestinn, og hafði þannig skýlaust unnið
þrautina.
Jóni bónda varð ekki meira um, en kerling-
unni sem sagði: „Ég ætlaði ofan hvort sem