Draupnir - 01.05.1903, Page 154
i86
DRAUPNIR.
firðinum og brutust fram undan dimmum ský-
flóka og sendu ljósstrauma sína á víð og dreif
í allar áttir, steig Jón Arason á bak Móaling
sínum, sem nú var kominn af folaaldrinum og
þeysti með fylgdarmanninum, sem rak á undan
sér hest með pjönkum hans, frá gamla munka-
klaustrlnu, þar sem hann hafði notið svo inargs
góðs. Og þegar sólin var gengin undir um
kvöldið og nóttin var búin að signa hennar síð-
ustu dagsverk með kyrð og hvítri hrímblæju,
voru þeir komnir yfir hina hrjóstugu Hjaltadals-
heiði, og riðu svo í sprettum heim að Hólum,
hálfri eikt fyrri en Gottskálk biskup hafði í fyrsta
lagi búist við svarinu, og því geðjaðist biskupi
vel að. Því hann var einn af þeim mönnum,
sem festi mjög mikla trú á, hvernig þeir, sem
urðu þjónustumenn hans kæmu honum fyrst fyr-
ir sjónir eða höguðu sér. Þetta var á laugar-
dagskvöldi sem Jón Arason kom að Hólum, og
var þá 15—16 ára gamalt ungmenni, með hrausta
hugrakka sálu í heilbrigðum líkama.? JUpptendr-
aður af vonardraumum í sinni nýju lífsstöðu á
þessum söguríka stað, hét hann að gera Herkú-
lesar hreystiverk, landi, íýð og sjálfum sér til
gagns og sóma. — Já, og hann hét:J
Að hefja frelsis fánann;hátt
með fræknri sigurmund,
og akta heimsins aðköst smátt.
Hann ætlaði á biskupsfund.
(Framh.).
Leiðréttingar: Langholt, á að veraí Miklaholt bls. 80—82—
89—91 og 11 t. Vinnulaus, á að vera: vinalaus bls. 157. Yfirveguð, á að
vera: óyfirveguð bls. 89. Suður mýrina, á að vera: upp mýrina bls. 90.