Draupnir - 01.05.1903, Page 160
DRAÚPNIR.
192
flotann, eða láttu mig fá söngflokk fyrir leik-
húsið, þá er kominn tími til að vera gjafmildur".
Hipyllos og Myrmax voru nú komnir inn
í hinn þéttbyggða hluta af Kerumeikos. £n jafn-
vel þótt stóra torgið, sem sumstaðar var upplýst
af tunglsbirtunni, en sumstaðar myrkt, blasti við
þeim með öllum sínum goðahofum, bogagöng-
um, sölubúðum, smálundum, ölturum, Hermesar-
Hkneskjum og fleiri myndastyttum, var þar mjög
fáförult, því allur þorri manna var lyrir löngu
kominn heim til sín frá leikvöllunum. Frjálsir
menn og ánauðugir höfðu lokið dagsverki sínu,
og eftir sólsetrið var börnunum ekki einu sinni
lofað að leika sér fyrir utan húsin. Samt var
ekki sérhver lífsneisti útskokknaður, því út úr
vínsölubúðunum heyrðis gleði og glaumur, og
frá einstöku steinsmíðaverkstofum heyrðist drynj-
andi urg og sagarhljóð, því í þá daga höfðu
steinsmiðirnir svo mikið að starfa, að þrælarnir
þeirra urðu oft að vinna á kvöldin og nokkuð
af nóttunni.
(Framh.)
Verð: 1 kr. 25 a.