Menntamál - 01.12.1938, Qupperneq 96
158
MliNNTAMÁL
lil notkunar við námið. Þessi iijálpartæki eru siðan
smám saman lögð til hliðar eftir því sem þekking harns-
ins og leikni eykst.
Við reikningskennsluna á fyrsta og öðru skólaári og
jafnvel lengur er nauðsynlegt að iiafa slík lijálpargögn
við hendina. Liggur þá næst fvrir að athuga, livernig
slik tæki séu bezt úr garði gerð. Hlutir eins og dýra-
likön, hermenn úr málmi o. fl. þess iiátlar er ekki vel
íallið til slikrar notkunar, vegna þess að athygli harns-
ins beinist um of að hverjum Jilut fyrir sig, en síður
að því, sem til var ætlazt, sem sé fjölda þeirra. lljálpar-
tækin verða að vera einföld, og þannig úr g'arði gerð,
að athygli harnsins beinist sem mest aðeins að fjölda
þeirra. Þau verða að vera létl í vöfum, ódýr og notkun
þeirra má eigi fylgja mikill hávaði.
Af þeim tækjum, sem hafa verið og eru noluð iiér,
má nefna kúlugrindina. Hana ætli að ijafa í hverjum
smábarnahekk. Ekki mun þó vera hægt að nota hana
sem einstaklingstæki. Veldur því hæði tivað hún er dýr
og eigi nógu einföld.
Sem reikningstæki í'yrir hvert barn má nota kubba,
spjöld úr pappa eða tré, pinna, kúlur o. fl.
Lausar kúlur, sem raðað er á götótla pappaplötu, lief-
ur þann kost, að auðvelt er að raða kúlunum í ákveðn-
ar tölumyndir, þar sem þær eru notaðar, en ókostur-
inn er, að þær eru venjulega brothættar og notkun
þeirra fylgir nokkur hávaði. Oft eru þær einnig liafðar
svo litfagrar, að aliiygli barnsins beinist meir að liverri
einstakri kúlu, en miður að lieildinni.
Sívalir trépinnar af ýmsum litum, 15—25 cm langir
og 3—4 mm i þvermál, eru góð tæki, einkum til þess
að gera börnum Ijósan mun á einingu og tugum, og
tel eg heppilegt að nola þá með pappa eða tréspjöld-
unum, sem ég minnist á síðar.